Menntamál - 01.02.1948, Blaðsíða 18
12
MENNTAMÁL
Mr. Mason kynnti mig fyrir 3 aðalfulltrúum sínum, en
þeir komu inn til hans rétt eftir komu mína og ræddu við
fræðslumálastj órann um aðalverkefni þeirra þann dag
og gáfu skýrslu um þau mál, er þeir höfðu afgreitt daginn
áður. Þessir fulltrúar áttu að leiðbeina mér að svo miklu
leyti sem Mr. Mason gat ekki komið því við sjálfur.
Nú var komið með tesopa inn til okkar. Meðan á te-
drykkjunni stóð, skýrði fræðslumálastjórinn mér frá
starfsháttum skrifstofunnar í stórum dráttum, og áttu full-
trúarnir síðar að sýna mér sitt af hverju í sambandi við
dagleg störf og afgreiðslu mála. Einnig var mér skýrt frá
ástandi og horfum í skólamálum í mjög stuttu máli — en
það skyldi skýrt nánar í sambandi við heimsóknir í skólana.
Þótt fræðslumálaskrifstofa Nottinghamshire sé í Nott-
inghamborg, þá nær verksvið Mr. Masons eða skrifstofu
hans ekki til borgarinnar. Góð samvinna er milli fræðslu-
málastjóra borgarinnar og nágrannahéraðanna.
Á umráðasvæði Mr. Masons — Nottinghamshire — eru
sveitir og smá og stór þorp. Þess vegna mátti sjá þar
bæði fámenna og fjölmenna skóla sambærilega við það,
er gerist sums staðar hér á landi. Kolanámur eru nokkrar
á þessu svæði, og má sjá þess merki í sumum skólunum.
Um kl. 11 fór Mr. Mason með mig á skólanefndarfund,
sem haldinn var í fundarherbergi skrifstofunnar. Var
þar aðallega f jallað um mál nokkurra barnaskóla. Skömmu
síðar kvaddi ég fræðslumálastjórann í bili, en fulltrúar
hans og námsstjórar skiptust á að fylgja mér milli ýmissa
skóla og fræða mig um störf þeirra. Að þessu vorum við,
þar til nemendur fóru heim úr skólunum — um kl. 16—17
— svo fórum við aftur í fræðslumálaskrifstofuna og röbb-
uðum við fræðslumálastjórann á aðra klukkustund um
það, er ég hafði séð og heyrt.
Eftir kvöldverð fór ég í boði fræðslumálastjórans og
konu hans í leikhús. Þar var ég m. a. kynntur fyrir borgar-
stjóra Nott-inghamborgar og formanni fræðsluráðs Nott-