Menntamál - 01.02.1948, Blaðsíða 22
16
MENNTAMÁL
vel húsvön, enda mun hún hafa tekið til höndum við blóma-
rækt og fleira. Er við höfðum skoðað landareignina, kvödd-
um við og fórum aftur til Nottingham. Mér fannst þessi
heimsókn og móttökur í flestu líkt og á stórbúum hér heima.
Skyldi húsfreyjan hafa tekið stórbúin í Borgarfirði sér til
fyrirmyndar ?
Eins og ég hef þegar drepið á, mun ég ekki fjölyrða
að þessu sinni um almennu skólana, sem ég heimsótti nær
því um þvert og endilangt Nottinghamshire, því að annars
staðar, sem ég kom í Bretlandi, sá ég hliðstæða skóla. Mun
ég ræða um almennu skólana síðar. Hins vegar heimsótti
ég stofnanir í Nottinghamshire fyrir vandgæf börn. Þær
hrifu mig svo, að ég greini frá þeim sérstaklega. Það,
sem sameiginlegt var fyrir þær þrjár stofnanir, er hér
verður getið, er það, að húsakynni þeirra voru áður stór-
býli eða „herragarðar," sem ýmist voru keypt eða gefin
til þeirrar starfsemi, sem þar fer nú fram. Nú eru það
ekki stórbændur eða aðrir slíkir, sem reka búskapinn, heldur
nemendurnir undir umsjá kennaranna.
1 Risley Hall er skóli fyrir 50—60 stráka, á aldrinum
7—16 ára, sem komið er þangað víðs vegar að vegna
óknytta, skrópa o. þ. u. 1. (Varð mér hér hugsað til Jónasar
B. og Jaðarsskólans við Elliðavatn!) Hver kennari ann-
aðist 12—15 stráka. Nemendur annast nær öll heimilis-
störf sjálfir, jafnvel þjónustubrögð. Piltarnir skiptast á
um hússtörfin — eins og önnur störf. Bóklegu námi er
hagað eftir aðstöðu og getu nemenda, en miklum tíma
varið til íþróttaiðkana og verknáms. Skólastjórinn sagði
mér, að stækka ætti stofnun þessa svo, að hún gæti tekið
100—120 stráka og strákarnir mundu vinna að því að öllu
leyti sjálfir undir stjórn eins fagmanns í hverri grein.
Skóli þessi hefur starfað 4 ár, og 90 nemendur hafa út-
skrifazt þaðan. Aðeins 3 nemendur hefðu „hlaupið útund-
an sér“ eftir burtför frá Risley Hall. Skólastjórinn sagði,