Menntamál - 01.02.1948, Blaðsíða 11

Menntamál - 01.02.1948, Blaðsíða 11
MENNTAMÁL 5 meiri áherzla á kennslu í hagnýtri sálarfræði en gert hefur verið hingað til. Á síðari árum hefur sálfræðin verið tekin í þjónustu atvinnuveganna. Það er því full þörf á hagnýt- ara námi. Allt til þessa hafa naumar fjárveitingar tafið allar framfarir á þessu sviði. Hagnýtara nám er líklegt til að stuðla að skilningi almennings á gildi sálfræðinnar og auknum fjárframlögum til þessara mála. Stúdentarnir kröfðust þess einnig, að tekin yrði upp „autorisasjon“ fyrir sálfræðinga, þ. e., að þeim einum, er hlotið hafa fullnægj- andi menntun, verði leyft að starfa á þessu sviði, en marg- ir kalla sig nú sálfræðinga, þótt þeir hafi ekki aflað sér viðunandi menntunar í þeirri grein. Þar eð það er nær því óhugsandi, að hver háskóli á Norðurlöndum geti séð nem- endum sínum fyrir fullnægjandi menntun í öllum sérgrein- um sálfræðinnar, töldu stúdentarnir eðlilegast, að nor- rænir sálfræðingar hefðu samvinnu á því sviði, í stað þess að hver háskóli reyni að sjá nemendum sínum fyrir ófull- kominni menntun í öllum sérgreinum. Ætti þá að vera hægt að fullnuma sig í einni sérgrein við hvern háskóla. Þeir létu og í Ijós óskir sínar um það, að reynt yrði að gefa út sálfræðilegt tímarit, sem væri sameiginlegt fyrir Norð- urlönd. Þessari ályktun var vel tekið af öðrum fulltrúum mótsins, enda var hún því sem næst hið eina jákvæða, sem lagt var fram um samvinnu norrænna sálfræðinga. Þennan dag var síðan rætt um menntunarskilyrði og atvinnuhorfur sálfræðinga. Fulltrúi frá hverju landi gerði grein fyrir aðstæðunum í heimalandi sínu. Tranekjær Rasmussen skýrði frá því, að í Danmörku gætu menn tekið svo nefnt kand. psyk. próf í sálfræði og uppeldisfræði. Það er þriggja ára nám og mest áherzla lögð á hagnýta uppeldisfræði og barnasálarfræði. Um 200 nemendur stunda nú slíkt nám við Kaupmannahafnarhá- skóla, og hefur orðið að takmarka aðgöngu að deildinni vegna takmarkaðs húsrúms og kennslukrafta. Auk þess geta menn tekið meistarapróf í Danmörku. Það er vísinda-

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.