Menntamál - 01.02.1948, Blaðsíða 21
MENNTAMÁL
15
London til athugunar og samþykktar. Allir fræðslumála-
stjórar og fræðsluráð í landinu áttu að skila sem fyrst áliti
og tillögum um skólabyggingar og annað í samræmi við
ákvæði hinna nýju fræðulaga landsins.
1 fræðsluráðinu átti sæti ein „Lady“. Einhvern tíma hefði
það víst þótt óviðeigandi, að slík hefðarfrú færi alllanga
leið frá heimili sínu til þess að sitja fund með um 70 manns
úr ýmsum stéttum og hafa þar bara jafnan tillögu- og at-
kvæðisrétt við aðra. En hefðarfrúin — Lady Belper heitir
hún — er ekki af gamla skólanum. Hún er tiguleg í fram-
komu, en mjög blátt áfram og var mér sagt, að hún væri
vinsæl vel.
Lady Belper dvaldist sumarlangtuppiíBorgarfirðivestra
fyrir nálægt aldarfjórðungi. Hún var þá unglingur og var
með Hambro bankastjóra í London og fleirum, sem voru
hér þá við laxveiðar. Þetta sagði hefðarfrúin mér nokkr-
um dögum eftir fræðsluráðsfundinn. Hún hafði sem sé
gert mér boð, hvort ég mundi fáanlegur til þess að heim-
sækja sig á óðalið — Kingston Hall heitir það. Bóndi
hennar var í London. Ekki stóð á mér, svo að ég skrapp
þangað með 2 fulltrúum fræðslumálaskrifstofunnar síðla
næsta góðviðrisdag. Við drukkum kaffi hjá húsfreyjunni,
og rabbaði hún við okkur um daginn og veginn eins og hver
önnur bóndakona. Hún spurði frétta frá íslandi, sýndi
myndir frá dvöl sinni hér og sagði frá ýmsu, er henni þótti
sérkennilegt og skemmtilegt af því, er hún sá þá og heyrði.
Auðheyrt var, að Lady Belper hefur haft augun opin og
áttað sig á aðstöðu fólksins og lifnaðarháttum, þótt ólíkt
væri því, er gerðist í heimkynnum hennar. Að loknum all-
löngum kaffitíma sýndi húsfreyja mér hluta af rúmgóðum
og allríkmannlegum vistarverum þeirra hjóna. Síðan var
labbað út á tún og að matjurta- og aldingarðinum. Þar
voru og nokkur gróðurhús. Virtist mér húsfreyja vera