Menntamál - 01.02.1948, Page 12

Menntamál - 01.02.1948, Page 12
6 MENNTAMÁL legt nám, og er mest áherzla lögð á tilraunasálfræði. Það tekur 6—7 ár. Áse Gruda Skard gerði grein fyrir aðstæðum í Noregi. Til þessa hefur aðeins verið hægt að ljúka meistaraprófi við Osloarháskóla. Það er 5—6 ára vísindalegt nám, og er mest áherzla lögð á sjálfstæðar rannsóknir. Auk meist- araprófsins munu menn nú næsta ár og framvegis geta lokið kand. psykol. prófi við Osloarháskóla. Það er þriggja ára nám, og verður mest áherzla lögð á almenna sálfræði. Það á að verða almenn undirstaða undir sérnám, en ekki undirbúningur undir neitt ákveðið starf. Ráðgert er að gefa þeim, sem ljúka kand. psykol. prófi, kost á að stunda tveggja ára sérnám eftir á í uppeldisfræðilegri sálfræði, sáltækni og félagssálfræði. Um 250 nemendur stunda nú nám í sálfræði í Oslo. Hafa flestir byrjað síðast liðið ár, og er líklegt, að bráðlega verði að takmarka aðgöngu að sálfræðideildinni. Arvo Lehtovaara skýrði frá því, að í Finnlandi væri hægt að ljúka kandidatsprófi í sálfræði við sálfræðideild- ina í Jyváskyká og háskólann í Helsingfors. Ráðgert er að skipta náminu í fjórar sérgreinar, vísindalega sálfræði, uppeldissálfræði, sáltækni og félagssálfræði. Um 100 nem- endur stunda nú sálfræðinám í Finnlandi. John Elingren skýrði frá því, að í Svíþjóð væru haldin námskeið í sálfræði og uppeldisfræði eitt til tvö ár til að bæta úr bráðri þörf fyrir sálfræðinga. Hann taldi, að þetta nám þyrfti að lengja og leggja þyrfti meiri áherzlu á fræði- legt nám. f Svíþjóð er og hægt að ljúka vísindalegu prófi með svipuðu sniði og í Noregi og Danmörku. Nokkrar um- ræður urðu um það, hvort stefna bæri að því að hafa hag- nýtt sálfræðinám stutt og sérhæft eða langt og með víð- tækri undirstöðumenntun. Norðmenn hafa lengst hag- nýtt nám og telja að frekar beri að bíða með að bæta úr þörfum fyrir sálfræðinga en slaka á kröfunum um víðtæka menntun. Svíar hafa mjög stutt hagnýtt nám og sjá sér

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.