Menntamál - 01.02.1948, Side 23

Menntamál - 01.02.1948, Side 23
MENNTAMÁL 17 að hann hefði verið þungt hugsandi um árangur starfs síns fyrsta árið, en nú væri hann mjög bjartsýnn — og það ekki að ástæðulausu. Á Hopwell Hall er skóli fyrir gáfnatrega drengi. Þar voru 50 drengir 7—16 ára. Sumir þeirra voru mjög gáfna- sljóir að sjá, vart meir en hálfvitar. Þarna var nóg land- rými. Piltarnir hjálpuðu til við utan- og innanhússtörf, eftir því sem andleg og líkamleg geta þeirra leyfði. Allveruleg stækkun er ráðgerð á stofnun þessari. í Sutton Bonington var heimili og skóli fyrir 50 stúlk- ur, 7—16 ára, hliðstætt því, sem á Hopwell Hall fyrir pilta. Ég heimsótti þessi þrjú heimili sama daginn. Þótti mér þeim degi vel varið. Datt mér í hug, hvort ekki væri at- hugandi hér heima að fá einhver stórbýli til hliðstæðrar starfsemi — eða hvort einhverjum mundi e. t. v. hug- kvæmast að gefa bæ sinn til þess konar góðgerðarstarfa. Til þess að bæta úr tilfinnanlegum kennaraskorti hefur verið komið upp allmörgum „bráðabirgða kennaraskólum“ (Emergency Training Colleges), sem útskrifa kennara eftir 13 mánaða nám. I þessa skóla fá inngöngu þeir menn, sem unnu að landvörnum heima og erlendis, ef þeir að loknum ýmiss konar hæfnisprófum og athugunum virðast búnir kennarahæfileikum. Ákveðins skólanáms er ekki krafizt inn í þessa skóla, sumir þeirra hafa aðeins barnaskólanám að baki sér. Menntaskólanám nægir meira að segja ekki, nema hlutaðeigandi hafi reynzt hæfur við hæfnispróf. Nemendur fá ókeypis dvalarkostnað, og fjölskyldumenn fá laun til þess að sjá fyrir heimilum sínum. Ég heimsótti einn slílcan kennaraskóla í Doneshill, Red- ford. Þar voru 210 nemendur 22—46 ára (meðalaldur 30 ár). Sltólinn var í bröggum, sem upprunalega voru byggðir fyrir verkamenn. Þeir höfðu staðið auðir 2 ár, áður en kennaraskólinn tók þá til afnota. Hver nemandi

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.