Menntamál - 01.05.1952, Blaðsíða 14
52
MENNTAMÁL
Magnússon cand. mag. í íslenzku og félagsfræði, Rútur
Halldórsson B. A. í ensku, Finnur Einarsson í reikningi og
dönsku og Sigurjón Kristinsson stúdent í sömu greinum og
enn fremur Halldór Steinsen stúdent í bókfærslu. í verk-
legum greinum: handavinnukennararnir Hólmfríður Krist-
insdóttir og Svanhvít Friðriksdóttir kenndu báðar sauma-
skap og þjónustubrögð og hin fyrr nefnda einnig vefnað,
Kristjana Steingrímsdóttir, Kristín Þorvaldsdóttir og
Kristín Kress kenndu matreiðslu, Marteinn Sivertsen kenn-
ari og trésmiður kenndi trésmíði, Jón Gylfi Hinriksson vél-
fræðingur kenndi málmsmíðar og vélvirkjun, Guðmundur
Þorbjarnarson kennari og netjagerðarmaður kenndi sjó-
vinnubrögð, Pétur Pétursson fulltrúi kenndi vélritun og
Haraldur Ágústsson iðnskólakennari kenndi flatarteikn-
un, bókband kennir Jón Jóhannesson handavinnukennari,
bastvinnu kennir Guðrún Hafsteinsdóttir og leikfimi þau
Kristjana Jónsdóttir og Kristján Benediktsson.
Þennan fyrsta vetur deildarinnar hafa 109 nemendur
stundað þar nám. Skiptast þeir á milli deilda sem hér segir:
f sauma- og vefnaðardeild voru 48 stúlkur, í hússtjórnar-
deild 20 stúlkur, í sjóvinnudeild 5 piltar, í trésmíðadeild
15 piltar og í járnsmíðadeild 21.
Þátttaka í frjálsa náminu var á þessa leið: í vélritun 74,
í bókfærslu 32; í bastvinnu 16; í bókbandi 15.
Nú hefur verið gerð athugun á því, hversu margir nem-
endur 2. bekkjar hafi hug á að sækja um inntöku í deild-
ina á hausti komanda. Reyndust það vera 198. Auk þess
má búast við, að einhverjir þeirra, sem hafa áður lokið
unglingaprófi, vilji komast þar að. Þá er svo að heyra á
þeim nemendum, sem sóttu skólann í vetur, að þeir ætli
sér að halda áfram næsta vetur. Benda því allar .líkur til
þess, að þessi deild verði þegar á fyrstu árunum einn af
fjölmennustu framhaldsskólum landsins. Verður því varla
sagt með sanni, að stofnun hennar hafi verið ófyrirsynju.
Á, H,