Menntamál - 01.05.1952, Blaðsíða 31
MENNTAMÁL
69
FRIÐRIK HANSEN
LÁTINN.
Friðrik Hansen var fæddur að Sauðá í Skagafirði 17.
jan. 1891. Foreldrar hans voru Christian Hansen (dansk-
ur) og Björg Jóhannesdóttir frá Garði í Hegranesi. Friðrik
lauk kennaraprófi 1915, réðst síðan kennari að Barnaskóla
Sauðárkróks og gegndi því starfi æ síðan. Friðrik lét félags-
mál Sauðárkróks mjög til sín taka, var t. a. m. oddviti
hreppsnefndar um 12 ára skeið. — Friðrik var orðlagt
glæsimenni. Farast Pálma Hannessyni rektor meðal ann-
ars orð um hann á þessa leið í minningargrein í Tíman-
um 8. apríl s. 1. „Hann var glæsilegur maður, gáfaður og
fjölhæfur, en viðmótið allt svo aðlaðandi, að hyggjur
manna hlutu að hníga til hans. Hann laðaði menn ósjálf-
rátt til fylgis við málstað sinn, beitti aldrei harðræði, skiln-
ingsgóður á kjör manna, einkum þeirra, er ekki máttu sín
mikils. Vegna þessa var hann jafnan einn helzti forustu-
maður á Sauðárkróki.“
Friðrik Hansen var tvíkvæntur. Fyrri kona hans, Jósef-
ína Erlendsdóttir, lézt 1937. Varð þeim 8 barna auðið.
Síðari kona hans, Sigríður Eiríksdóttir, lifir mann sinn
ásamt 4 börnum þeirra.
Friðrik lézt í Landspítalanum 27. marz s. 1.