Menntamál - 01.05.1952, Blaðsíða 27
menntamál
65
Sjöholm 75 ára.
Börn og blóm og bækur
— og Sjöholm. Mér finnst
vart hægt að hugsa sér
Sjöholm nema í barnahóp
og blómahafi, enda hefur
hann lengst ævi sinnar
dvalið og unað sér í slíkum
félagsskap. Þar naut hann
sín til fulls, börn og blóm
voru vinir hans.
Sjöholm er einn þeirra
fáu manna, sem eru kenn-
arar af guðs náð. 1 skóla-
stofunni var hann í essinu
sínu, þar var glaumur og
L. Gottfrid Sjöholm. ^eði, leikur og starf. Þar
ríkti hamingja og starfs-
áhugi. En Sjöholm vann
^íðar en þar. Hann mun bera einna hæst barnakennara á
Norðurlöndum, og áhrifa hans hefur gætt víðar í starfs-
háttum barnanna. Hann hefur haldið um 170 námsskeið
á Norðurlöndum, þar af eitt hér á landi 1946. Hann hefur
Ntað 30 bækur og ýmsar þeirra eru í mörgum heftum, skrif-
•að um 50 ritgerðir í bækur og yfir 300 greinar í blöð og
tímarit. Flestar ritsmíðar hans eru um skólamál og skóla-
Oienn. Má af þessu sjá, hversu mikill afkastamaður hann
er- Og enn skrifar hann, enn er hann fullur af áhuga og
starfsgleði, þótt hann hafi orðið 75 ára 4. apríl s. 1.