Menntamál - 01.05.1952, Blaðsíða 28
66
MENNTAMÁL
Margir íslenzkir kennarar þekkja Sjöholm frá veru hans
hér og sumir hafa heimsótt hann og hlustað á kennslu hjá
honum. Þeir munu eflaust allir hugsa til hins síunga öld-
ungs á þessum tímamótum hans með hlýhug, þakklæti og
virðingu.
J. B. J.
Danskir kennarar
Eins og kennurum er kunnugt, fóru 10 íslenzkir kennar-
ar í heimsókn til Danmerkur s. 1. sumar.
Þeir íslenzkir kennarar, er þátt tóku í þessari för, létu
framúrskarandi vel yfir för sinni og rómuðu í hvívetna
gestrisni og alla fyrirgreiðslu danskra stéttarsystkina.
íslenzku kennarasamtökin hafa nú boðið hingað heim
10 dönskum kennurum, og hefur boðið verið þegið, og munu
Danirnir koma hingað til lands 16. júlí n. k.
Dönsku kennararnir munu dvelja um 3 vikna skeið í
landinu. Þeir munu dvelja í Reykjavík fyrstu vikuna, fara
í ferðalag með íslenzkum kennurum (sennilega til Kerl-
ingafjalla), en síðan dvelja þeir meðal íslenzkra kennara
úti á landi í viku til 10 daga.
Þeir kennarar, er hafa möguleika á því að aðstoða kenn-
arasamtökin í þessu efni, svo dvöl dönsku kennaranna geti
orðið þeim til ánægju og íslenzkum kennurum til sæmd-
ar, eru vinsamlega beðnir að gera stjórn kennarasamtak-
ana viðvart hið fyrsta.
Kennarasamtökin njóta aðstoðar stjórnar Norræna-
félagsins, en Norrænufélögin í Danmörku og íslandi standa
að þessum gagnkvæmu kennaraskiptum.
A. K.