Menntamál - 01.04.1965, Page 18
12
MENNTAMAL
Ályktun Alþjóðasambands barnakennara
(I. F. T. A.) um þróun barnafræðslunnar.
33. þing I. F. T. A., haldið í París 27.-30. júlí 1964, het'-
ur kynnt sér og rætt spurninguna uni þróun barnafræðsl-
unnar í samræmi við meginreglur I. F. T. A.
Þingið leggur enn áherzlu á, að hvert barn eigi skilyrð-
islaust rétt á að þroskast eins og hæfileikar þeirra frekast
leyfa.
1. Þingið tclur:
a) að framþróun í vísindum, iðnaði og verzlun hafi
breytt efnahagslégum, stjórnarfarslegum og íélagsleg-
uni aðstæðum í öllum löndum.
b) að þar sem þessar breytingar liafi óhjákvæmilega áhrif
á upplræðsluna, sé hið venjulmndna námsefni og
kennsluhættir ekki lengur íullnægjandi.
c) að veigamesta hlutverk uppfræðslunnar hljóti að vera
það að búa þegna Iramtíðarinnar undir þátttöku í
nútíma þjóðfélagi og mæta kröfuin nýs tíma.
2. Þingið veitir pvi athygli, að nú þegar er sú stefna uppi
í flestum aðildarríkjanna:
a) að lengja skólaskylduna.
b) að sjá öllum nemendum fyrir meniitun, sem er
meira við hæfi einstaklinganna en nú er.
c) að auka fjölda þeirra nemenda, sem halda áfram
námi, eftir að skólaskyldu lýkur.
d) að leiðbeina nemendum um framhaldsnám í sam-
ræmi við tilhneigingar þeirra og hæfileika og auð-
velda þeim að flytjast milli mismunandi skóla til að
tryggja hverjum nemanda beztu mögulega menntun.
e) að auka fjölbreytni innan skólanna með hóp- og ein-