Menntamál - 01.12.1968, Blaðsíða 51
MENNTAMÁL
277
Ól. Jónsson, námstjóri, leiðbeindn í átthaga- og félags-
fræði.
Auk þeirra fluttu erindi á námskeiðinu Stefán Júlíus-
son, forstöðumaður Fræðslumyndasafns ríkisins, um
fræðslumyndir, Torfi Ásgeirsson, hagfræðingur, sem ræddi
um skólakostnaðarlögin nýju og Skúli Þorsteinsson, nám-
stjóri, er ræddi um kennarasamtökin, norræna samvinnu
og Alþjóðasamtök kennara. Námskeiðið sóttu 31 kennari.
2. 2. Kennarafélag Eyjafjarðar og kennarasamband
Norðurlands eystra
héldu fræðslufund á Akureyri 27. og 28 september og
sá Valgarður Haraldsson námstjóri um undirbúning fundar-
ins. Dr. Matthías Jónasson, prófessor, flutti erindi, er hann
nefndi: ímyndunarafl og innsæi barna.
Valgarður Haraldsson, námstjóri, ræddi um skólahalds-
skýrslur og skólakostnaðarlög.
Jóhann Sigvaldason, kennari á Akureyri, flutti erindi,
er hann nefndi: Nútímaþjóðfélag og skólinn.
Hörður Ólafsson, kennari á Akureyri, talaði um lestrar-
kennslu og Indriði Úlfsson, skólastjóri, um kennslutæki.
Þátttakendur voru 57.
2. 3. Fræðslufundur á Siglufirði 12. okt.,
haldinn á vegum Kennarafélags Norðurlands vestra,
undir stjórn Valgarðs Haraldssonar. Erindi fluttu Hörður
Ólafsson og Jóhann Sigvaldason um sömu efni og á Akur-
eyrarfundinum og Valgarður Haraldsson, námstjóri, tal-
aði um nýstærðfræði. Þátttakendur voru 26.
2. 4. Námskeið í Leirárskóla 27. til 29. sept.,
haldið á vegum Kennarafélags Mið-Vesturlands í sam-
vinnu við Þórleif Bjarnason, námstjóra Vesturlands. Stjórn-
andi námskeiðsins var Sigurður Guðmundsson, skólastjóri.
Aðalviðfangsefni var: meðferð kennslutækja og starfræn
vinnubrögð.