Menntamál


Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 7

Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 7
eins og lögregluna, slökkviliðsmanninn, skósmið- nin og skipstjórann. Jafnvel þótt börn á þessmn aldri lesi sér ekki öll til gagns, eru bækur mjög þýðingarmikill þáttur í uppeldi þeirra og kennslu. Sum hafa vanizt bókum frá fyrstu tíð og sögur hafa verið lesnar fyrir þau á kvöldin. Önnur hafa minni reynslu af bókum, og getur lielzt skólinn leitt þau inn á lestrarbrautina. Strax og barnið getur lesið, er því ánægja að Reta flett upp í bók og fengið svar við spurningu. Hversu mjög yrðu ekki mæðurnar fegnar, ef þær gætu fengið síspyrjandi barni sínu bók og kennt því að leita að svörum við spurningum sínum þar? Notkun bóka á hvaða aldri sem er, fer ekki eftir greind eða andlegri getu barnanna, heldur eftir áhuga þeirra og hvatningu, sem þau fá. Bækurnar fyrir yngstu lesendurna verða að vera fallegar og freistandi og aðgengilegar þeim, hve- nær sem áhugi vaknar. Bækurnar eiga því að vera lil staðar sem sjálfsagður hluti kennslu- stofunnar, til þess að börnin læri að umgangast þær sem tæki til fróðleiks og skemmtunar. Mjög snemma geta börn farið að nota bækur í beinu fróðleiksskyni. Þegar þau eldast og lestr- MENNTAMÁL 65

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.