Menntamál - 01.04.1972, Qupperneq 9
Hér á landi er ekkert slíkt við að styðjast. Eng-
in skrá er til yfir bækur útgefnar sérstaklega fyrir
f>örn né heldur bækur, sera mælt er með fyrir
börn. I>að eina, sem við er að styðjast, eru hinar
árlegu Bókaskrár Bóksalafélags íslands, sem ná
yfir bækur gefnar út árið á undan. Árbók Lands-
öókasafns íslands kemur einnig út seint á árinu
efáir, að bækurnar koma út. Einnig mætti nefna
ntgáfulista sumra útgefenda, en einstaka útgef-
endur hafa ekki einu sinni skrá yfir framleiðslu
Sl’na. Þessar heimildir eru því skammgóður verm-
lr» og að sjálfsögðu fylgja engar umsagnir með
þessum listum.
Umsagnir eru mjög þýðingarmikill þáttur í
slíkum listum. Bæði getur réttlátur ritdómur
orðið útgefendum aðhald við útgáfuna, og einnig
fæst þarna hlutlaust mat á verkum, sem er ætlað
að þjóna ákveðnum tilgangi. Heimildir, sem
bókaverðir styðjast einnig mikið við, eru ritdóm-
ar og umsagnir, sem birtast í blöðum og tímarit-
um, skrifaðir af hlutlausum aðilum. Vegna þess
að bókaútgáfa okkar miðast öll við jólamarkað-
inn, vinnst ekki tími til að lesa og skrifa um bæk-
urnar, áður en þær eru settar í jólapakka barn-
anna. Það hefur einnig verið nijög áberandi, hve
fáir hafa lagt sig niður við að skrifa umsagnir
MENNTAMÁL
67