Menntamál


Menntamál - 01.04.1972, Page 23

Menntamál - 01.04.1972, Page 23
Segja má, að ríkjandi viðhorf til bernsku og æsku fái skýrasta mynd í starfi skólanna, þar sem æskufólki er haldið við nám oft fram yfir tvílugs aldur. Alkunnugt er, að það viðhorf, sem liggur að baki þeirri uppeldisstefnu, sem nú var lýst, er að tniklu leyti fram kornið sakir breyttra þjóðfélags- hátta og því rökrétt að því marki. Fáir munu heldur bera brigður á, að margt í kenningum nútíma uppeldisfræðinga sé á fulltraustum rök- um reist. Þess er þó ekki að dyljast, að þótt við- borf t. d. 19. aldar manna gagnvart börnum hafi um margt verið einsýnt og þröngt, er þar samt gert ráð fyrir sammannlegum órofa tengslum milli bernsku og fullorðinsára, sem nútímamönn- um hættir til að gleyma eða vanmeta sakir ofur- uherzlu á séreðli bernskunnar. Óvíða mun „togstreitunnar" milli þessara við- horfa gæta meira en á sviði svonefndra barna- °g unglingabókmennta. Má segja, að almennt megi tala um tvær ólíkar tegundir barnabóka- höfunda. Annars vegar eru þeir, sem líta á börn °g unglinga sem sérstakan einangraðan hóp, sem hljóti að hafa sérstakar þarfir, sem skylt og hentugt sé að fullnægja. Þeir ætla því „hópnum“ akveðnar þarfir, ákveðinn smekk, oft af mikilli uákvæmni eftir aldursflokkum og kynjum, og setja síðan saman efni samkvæmt því, en sjaldan eftir eigin löngun og þörf. Oft blandast hér inn í uppeldislegar og siðfræðilegar hugmyndir um lestrarefni auk sölumennskuviðhorfa. Hins vegar eru þeir liöfundar, sem starfa á sammannlegum gt'undvelli, sem þeir eiga sameiginlegan með börnum og fjölda fullorðinna lesenda. Að jafnaði mtða þeir bækur sínar við börn, af því að þau em mynda viðurkenndan markað fyrir bækur shkar, sem þeir óska sjálfir að skrifa af eigin hvötum og innri þörf. í athyglisverðri ritgerð (“On Tlnee Ways of Writing for Children” i Of Other Worlds, Essays & Stories, 1965) gerir C. S. Lewis grein fyrir þrem- ur aðferðum eða leiðum við samningu skáldskap- ar handa börnum og unglingum, tveimur „góð- um“ og einni „slæmri“ að hans áliti. Urn fyrstu hynni sín af „slæmu“ aðferðinni farast honum svo orð: „Kona nokkur sendi mér handrit að sögu, þar sem álfkona fær barni í hendur dásam- legt „tæki“. Ég segi „tæki“, því að það var ekki töfrahringur eða hattur eða kápa eða neinn slík- ur liefðbundinn töfragripur. Það var vél með tökkum og handföngum til að toga í og styðja á. Ef stutt var á einn takkann, kom rjómaís, ef togað var í eitt handfangið birtist lifandi hvolp- ur o. s. frv. Ég hlaut að segja höfundinum í allri einlægni, að ég hefði næsta lítinn áliuga á slíku. Hún svaraði: Ekki ég heldur, mér finnst þetta sjálfri drepleiðinlegt. En þetta er það, sem nú- tíma börn vilja." Um fyrri „góðu“ aðferðina getur Lewis þess, að hún kynni í fyrstu að virðast svipuð liinni „slæmu“, en að hann telji líkindin einungis á yfirborðinu. Það er sú aðferð, sem t. d. Lewis Carrol notaði, er hann samdi Lisu i Undralandi', hin prentaða saga vex þá upp af sögu, sem höf- undur segir ákveðnu barni af munni fram og semur oft jafnharðan. Þessi aðferð líkist liinni fyrst nefndu að því leyti, að höfundurinn reynir að segja þessu barni það, sem það langar að heyra. Hér er þó sá munur á, að þetta barn er sjálfstæð- ur einstaklingur með eigin langanir og þarfir, sem höfundurinn kynnist af eigin raun, metur og tekur sérstakt tillit til og lagar sig eftir jafn- óðum. Hér er ekki um að ræða „börn“ sem sér- stakan hóp með venjur og þarfir, sem höfundur hefur mótað í lmga sér fyrirfram. Sagan verður því persónulegri og óháðari tilteknum sjónar- miðuvn um vinsældir og áhrif. Þriðja leiðin er sti, sem C. S. Lewis sjálfur notaðí við eigin sögur (hann samdi m. a. liinar kunnu Chronicles of Narnia): að miða sögu við börn og unglinga sem lesendur, af því að barna- söguformið hæfi bezt því, sem höfundurinn verð- ur að segja. Hér er því um að ræða sanna list- ræna tjáningu, sem sprottin er af innri þörf skálds, en ekki til orðin vegna ytri aðstæðna eða þrýstings. í lýsingu þessara aðferða koma skýrt fram bæði þau viðhorf, sem áður er getið. Höfundur, sem beitir „slæmu“ aðferðinni, lítur á börn sem sér- stakan hóp (sem í þessu tilviki er nefndur „nú- tíma börn“) og ætlar honum tilteknar þarfir, sem hann telur sig vera að fullnægja. Sérstaklega MENNTAMÁL 81

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.