Menntamál


Menntamál - 01.04.1972, Side 26

Menntamál - 01.04.1972, Side 26
Á Sprengisandi eftir Grím Thomsen er lang- vinsæiasta kvæðið meðal drengja. 58 drengir eða 40% þeirra greiða því jákvætt atkvæði, en að- eins 2 neikvætt. Það nýtur ekki nærri því eins mikilla vinsælda meðal stúlkna, og er munur þessi marktækur. Þær skipa því í 10. vinsældaröð. 19 þeirra eða 11.7% greiða því jákvætt atkvæði, en 6 eða 3.7% neikvætt. Alls fær kvæðið í 10—12 ára bekkjum 97 jákvæð og 11 neikvæð atkvæði. Þessu kvæði er skipað í flokk náttúruljóða, en á því er rammur þjóðtrúarblær. Það eru ekki ein- göngu öræfin, sem vekja ugg ferðamannsins, held- ur miklu fremur útilegumenn, ólireinir andar og álfar, sem eru þar á reiki, þegar rökkva tekur, albúnir þess að granda vegfarendum. Hugblær ljóðsins er máttugur og dulúðgur, vekur geig við öræfaauðnina og allt, náttúrlegt og yfirnáttúrlegt, sem í henni býr. Kvæðið, sem er meistaraverk, orkar miklu sterkara og jákvæðara á drengi en stúlkur. Það reynir á þolrif ferðamannsins, en nemendur ganga að því vísu, að hann hafi komizt óskaddur úr þessari raun. Fleiri stúlkur en dreng- ir greiða kvæðinu neikvætt atkvæði, og gæti það stafað af því, að feiknir þær, sem í því er lýst, skjóta sumum þeirra of mjög skelk í bringu. — Kvæðið er einnig mjög vinsælt með þeim 11 ára drengjum, sem nota 1. liefti Skólaljóða. Vinsæl lög eru við kvæði þetta, þjóðlag, lög eftir Sig- valda Kaldalóns og Sigfús Einarsson, og má gera ráð fyrir, að mörg börn kunni þau, eða kann- ist við þau. Fifilbrekka, gróin gnmd eftir Jónas Hallgríms- son. 16 drengir eða 11% og 30 stúlkur eða 18.4% greiða kvæðinu jákvætt atkvæði. Drengir skipa því í 12. vinsældaröð, stúlkur í 3. 15 drengir eða 10.3% og 22 stúlkur eða 13.5% þeirra greiða því neikvætt atkvæði. Skipa drengir því í 7., en stúlk- ur í 5. óvinsældaröð. Kvæðið er nokkrum sinn- um nefnt í 11 ára bekkjum, en aldrei í 12 ára bekkjum. Alls fær það í 10 og 11 ára bekkjum 49 jákvæð atkvæði og 45 neikvæð. Vinsæl lög, þjóðlag og lag eftir Árna Thorsteinsson eru við kvæðið, og kunna mörg börn J>au eða kannast við þau. Kvæðið er 5 erindi, og er efni og innri gerð Jæirra allra lík. Hvert erindi hefst á því, að skáld- MENNTAMÁL 84 ið ávarpar ýmsa eftirlætisstaði sína í dalnum: fífilbrekku, gljúfrabúa, bunulæk, hnjúkafjöll og loks sæludalinn með öllum Jreim dásemdum, sem í honum eru. í næstu tveimur vísuorðum getur liann nánar einkenna }>eirra, hlutverks eða staða í tengslum við aðalheitið: „grösug hlíð með bei'ja- lautum/flóatetur fífusund". 4. vísuorðið í hverju erindi er endurtekning 1. vísuorðs með tilbrigð- um: „fífilbrekka, smáragrund," „gljúfrabúi, hvíti foss," o. s. frv. 5. og 6. vísuorð eru almennara eðlis, tjáir skáldið J>ar ýmist tilfinningatengsl sín við staði Jrá, er það hefur nefnt, eða dregur fram almennt gildi þeirra: „Yður hjá ég alla stund/uni bezt í sæld og Jrrautum," eða: „Skýlið öllu helg og há/hlífið dal, er geisa vindar." Síðustu tvö vísuorðin eru svo endurtekning tveggja hinna fyrstu. Hver vísa er heild, lokast eins og hringur um reglubundnar endurtekning- ar með lilbrigðum. Engin saga eða frásögn felst í kvæðinu. Það er hreint náttúruljóð. í þessu kvæði Jónasar birtast vel máltöfrar hans og rímsnilkl. Vart mun nokkurt annað ljóð hans vera jafn-hnitmiðað og margslungið að formi, né ort af meiri íþrótt, þrátt fyrir einfald- leik sinn. Það er eins og hvert orð geisli af fegurð og unaði, og á þessum klið er hert með hrynjandi, rími og endurtekningum. Að sjálfsögðu gera börn sér ekki grein fyrir hinni þaulhugsuðu og sam- ræmdu byggingu kvæðisins, þau skynja þessa kliðmjúku rímfléttu sem einfalda heild. Fleiri stúlkur en drengir geta lifað sig inn í náttúru- lýsingar ljóðsins, en mörgum tekst það ekki; verður Jrað þá í eyrum þeirra sem hljómandi málmur og hvellandi bjalla, dauð upptalning, sem hugur þeirra gæðir hvorki merkingu né fyll- ingu. Kvæðið skírskotar mun minna til drengja. Þeir eru yfirleitt nokkru seinni til en stúlkur að njóta hreinnar ljóðrænu, þar sem ekki er um neina atburðarás eða efnisjrráð að ræða. Ungum er það allra bezt. Heilræðavísur eftir Hallgrím Pétursson. 18 drengir eða 12.4% og 29 stúlkur eða 17.8% Jreirra greiða kvæðinu já- kvætt atkvæði. Skipa drengir því í 10., en stúlkur í 4. vinsældaröð. Aðeins 2 drengir og 2 stúlkur greiða því neikvætt atkvæði. Kvæðið er nokkrum sinnum nefnt í 11 og 12 ára bekkjum og fær }>ar

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.