Menntamál


Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 29

Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 29
stofnað, er ekki unnt að halda því fram, að sið- gæðisboðskapur hennar sé alls kostar góður. Niðurlag. Sögur þær, sem bæði piltar og stúlk- ur telja beztar, og mestra vinsælda njóta á þess- urn aldri, eru 2 barnaævintýri, Litla stúlkan með eldspýturnar og Lyklarnir, þrjár jjjóðsögur, Munchausensögur, Karl og kerling og Naglasúp- an, og ein veiðisaga, Bardagi við hvítabirni. Æv- uitýri H. C. Andersens er heimsfrægt listaverk °g ber af öllum sögunum að listgilcli. Þótt hún sé sorgleg, er liún laus við tilfinningavæmni. Hún er reyndar miklu vinsælli með stúlkum en piltum, og virðist það stafa af tvennu: Söguhetjan er lítil stúlka og eiga því stúlkur af þeim sökum auðveldara um að setja sig í sj^or hennar (sant- sama sig henni), og efni sögunnar vekur sterka meðaumkun og samúð. Bardagi við hvítabirni segir frá viðureign manna við óargadýr, sem háð er af illri nauðsyn. Kemur hvergi fram í sögunni grimmd né drápgirni og sakir þessa orkar hún ekki fráhrindandi á stúlkur, særir ekki tilfinn- íngar þeirra. Hún er jafnframt spennandi saga um lífsháska og svaðilfarir. — Þjóðsögurnar þrjár °g annað barnaævintýrið, Lyklarnir, hafa öll á sér svipaðan blæ. Allar eru sögur þessar skoplegar, þar kemur fram græskulaust eða giæskulítið gam- an. Hrakfallasaga karlsins, sem tekur að sér liús- verkin einn dag, er sprenghlægileg, en flónska hans liefur samt ekki nema hæfilega vondar af- leiðingar, sem nægja rétt til þess, að karl læri sína lexíu. Piltar setja það ekki fyrir sig, þótt aulinn í sögunni sé karlmaður. í Naglasúpunni og Lyklunum er leikið á einfeldninga á skop- legan en hóflegan hátt. Ginningarfíflið í fyrri sögunni er kerling, en í hinni síðari karl, og bragðarefurinn er karlmaður í báðum. En svo hóflega er á frásögn haldið, að hvorki piltar né stúlkur setja þetta fyrir sig, svo að nokkru nemi. Einfeldningsleg fyndni kemur fram í stórlyga- sögum Munchausens, þær skemmta þó drengjum miklu betur. Þær „eru nokkuð vitlausar, en þó ekki svo vitlausar, að ekki sé hægt að hlæja að þeim,“ eins og ein 11 ára telpa komst að orði við mig. Fjórar sögur af sex, sem bæði drengjum og stúlkum þykja beztar, höfða til skopskyns og meinlítilla hrekkja. Bragðarefirnir, sem hafa flón að ginningarfíflum, verða þó að gæta hófs og leika ekki of grátt við minni mátt. Kemur þetta viðhorí fram í Naglasúpunni, sem fær langflest jákvæð atkvæði allra kafla í lesheftum barna- skólastigs, svo og í Lyklunum, sem hlýtur næst- flest jákvæð atkvæði. MENNTAMÁL 87

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.