Menntamál


Menntamál - 01.04.1972, Side 33

Menntamál - 01.04.1972, Side 33
oddsen, prentuð 1880. Reikningsbók eftir J. Sig- fússon, prentuð 1885. Kennslubók i flatamdls- freeði eftir Halldór Briem kennara á Möðru- völlum, prentuð 1889. Reikningsbók eftir R. Morten Hansen, prentuð 1890. Kennslubók i þykkvamdlsfrœði eftir Halldór Briern, prentuð 1892. Og Reikningsbók lianda börnum eftir Ög- niund Sigurðsson, síðar skólastjóra í Flensborg, prentuð 1900. Sjálfmenntaðir stærðfræðingar I.íklegt er, að á öllum öldum íslandssögunnar liafi verið til menn hér á landi sjálfmenntaðir eða að mestu leyti sjálfmenntaðir í tölfræði, þótt við vitum ekki nöfn þeirra. Á síðari tímum, eftir að prentaðar reikningsbækur koma til sög- unnar, verður reikningskunnáttan almennari. í byrjun þessarar aldar var fjöldi sjálflærðra stærð- fræðinga enn ofar moldu. Einn þessara manna, sem ég man eftir, var Pétur Þórðarson alþingis- ntaður í Hjörsey. Hann var um skeið endurskoð- andi landsreikninga. Ég man fyrst eftir Pétri á öðrum tug þessarar aldar. Hann var þá á ferð á æskuheimili mínu. Svo hittist á, að ég var ]rá með t'eikningsbók Eiríks Briem, eins og fleiri ungling- ar á þeim árum. Pétur sagði mér, að ég skyldi læra þessa bók vandlega. Bókin væri þannig úr garði gerð, að þeir, sem hefðu áhuga og getu, gætu vel lært hana tilsagnarlaust. Eitt skyldi ég þó læra vcl í upphafi, en það var stóra og litla margföldunartaflan. í bók Eiríks Briem voru allar þær töflur, sem áður er um getið. Bókin var sniðin við sjálfsnám, samin af afburðakenn- ara. Utskýringar voru ágætar og svör við hvert óæmi. Samvizkusamir unglingar settu roðpjötlu eða bót yfir svarið, áður en Jjeir skrifuðu á stein- spjaldið, en aðgættu síðar, hvort dæniið væri rett leyst. Öld steinspjalda og griffla var enn ekki liðin, jafnvel ekki 1932, þegar ég byrjaði að benna. Þá kom eitt og eitt barn í skólann með steinspjald, sem foreldrar þeirra höfðu notað. A þeim árum voru íslendingar fátækir. Margir höfðu þá tæplega til hnífs og skeiðar. Allt fram á þennan dag hafa menn lært stærð- fræði og margar aðrar námsgreinar því sem næst tilsagnarlaust. Það sýnir sá fjöldi manna, sem tekið hefur stúdentspróf utan skóla og varla inn fyrir skóladyr komið. Nefna má, að einn af þekktustu stærðfræðingum þessa lands lék sér að því að taka stúdentspróf stærðfræðideildar utan skóla og hafði þá aldrei í skóla setið. Þá má nefna alþýðumanninn Vilhjálm Ögmundsson á Narfeyri, sem varð þekktur stærðfræðingur inn- an lands og utan. Vilhjálmur er látinn fyrir nokkrum árum síðan. Ýmsir háskólagengnir menn í raunvísindum hafa haldið því fram, að hefðu þeir lært sinn barnalærdóm í reikningi með nútíma aðferðum, hefði námið gengið betur og þeir orðið meiri og betri stærðfræðingar. Spyrja mætti: Er þetta sönn eða ósönn fullyrðing? Ég held, að þetta verði hvorki sannað né afsann- að. Eftir á getur mönnum fundizt þetta eða hitt. Að lokum þetta: Rétt er að taka allar þær nýj- ungar í kennslumálum til athugunar, sem efst eru á baugi hjá nágrannaþjóðum okkar. Betra er þó að fara að öllu með gát. Stökkbreytingar á þessu sviði munu ekki gefast vel. í janúar 1972. A thugasemd ritnefndar Eftir upphafi greinarinnar að dærna mun helm- ingur Menntamála 1970 og 1971 hafa farið frani hjá höfundi, því að bækur og lagafrumvörp um skólamál eru rædd í 5 hefium af 10 í þeini árgöngum, en hitt er rctt að það er of lítið. Þar er við að sakast þá staðreynd að kennarar eru æði tregir eða þungir til að skrifa um þessi efni. Og það er misskilningur hjá höfundi að Menntamál séu lokuð nema „vissuni hóp ntanna", því að ritið stendur og hefur staðið opið hverjum þeim sem vill skrifa um einhvern þátt upp- eldis- og skólamála af hógværð og sanngirni — og jafnvel fleirum, en greinum um þessi efni hafa Menntamál ekki hafnað. Hitt er eðlilegt í núthnaþ jóðfélagi að ekki lesi allir kaupendur tímarits hvert orð í hverju hefti þess, heldur vinza menn úr og lesa flestir fyrirsagnir til að finna það sem þeirn virðist hclzt áhugavert, sleppa hinu. Þannig sía rnenn sér efni úr fjölmiðlum yfirleitt. Annars eru greinar um þetta efni, stefnu Mennta- mála og efnisval, vel þegnar, og dugi nú þeir sem hafa skoðun á því hvort efni tímaritsins er umræðu vert! MENNTAMÁL 91

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.