Menntamál - 01.04.1972, Qupperneq 37
Irma Arminen heiðruð.
Dagskrá stjórnarþingsins
1. Launakjör kennara.
2. Réttindi og skyldur. Grundvallarviðhorf í framhalds-
menntun kennara.
3. Rannsókn á vinnuaðstöðu kennara.
4. Úrvinnsla gagna sem grundvöllur umræðna um
launamál, og kostnaður við fræðslumál með hlið-
sjón af hagvexti þjóðar.
5. Verkefni í sambandi við samræmingu skólakerf-
anna á Norðurlöndum.
6. Heimavinna nemenda.
7. Ýmsar tilkynnningar frá kennarasamböndunum.
8. Þingstaður 1972.
9- Kjör formanns og framkvæmdastjóra.
Sá háttur var hafður á, að þingfulltrúar frá hverju
landi graindu frá markverðustu breytingum, sem orðið
hafa í löndum þeirra frá síðasta þingi varðandi launa-
°9 starfskjör kennara, og hvaða baráttumál í þeim efn-
um eru fram undan.
Fulltrúarnir frá hverju landi skiptu með sér framsögn
um aðra liði dagskrárinnar.
Af dagskránni sést, að fjallað var um margvísleg, sam-
eiginleg málefni, þótt ákveðnar ályktanir hafi ekki verið
Serðar. Sum atriðin verða tekin fyrir aftur á næsta
Þingi, svo sem um grundvallarviðhorf í framhaldsmennt-
Ue kennara. Þá má einnig nefna samræmingu skóla-
körfanna á Norðurlöndum, sem er farið að ræða og
9era ályktanir um á æðstu stöðum fræðslumála á Norð-
Urlöndum og kanr að hafa mikla þýðingu fyrir islend-
inga.
Svavar Helgason, fulltrúi S.Í.B., hafðl framsögu um
heimavinnu nemenda.
Næsti þingstaður var ákveðinn í Stokkhólmi að hausti
1972 og var Hans Hellers, formaður Sænska kennara-
sambandsins kjörinn formaður Norræna kennarasam-
bandsins og þá um leið forseti næsta þings.
Við þingslit heiðruðu Skúli Þorsteinsson og Hans
Hellers varaformann finnska kennarasambandsins, Irmu
Arminen, með sérstökum kveðjuræðum og gjöf frá Nor-
ræna kennarasambandinu, þar sem hún lætur nú af
störfum vegna aldursmarka og mun því ekki sitja fleiri
slík þing, Var henni gefinn kertastjaki úr hrauni og þótti
hinn snotrasti gripur.
MENNTAMÁL
95