Menntamál


Menntamál - 01.04.1972, Síða 45

Menntamál - 01.04.1972, Síða 45
undir hann meðvitað. Það er áberandi, hvernig eðlileg sönggleði ungbarna dvínar við 5 eða 6 ára aldur. Þetta Þýðir í rauninni hrörnun og rýrnun á músíkölskum hæti- leikum barnsins, sem erfitt er að bæta upp síðar meir. Hæfileikar eða gáfur eru ekki óumbreytanleg stærð, fengin f vöggugjöf — heldur stærð, sem mótast og breytist vegna áhrifa umhverfisins. Þetta er staðreynd, margsönnuð með fjölda af vísindalegum rannsóknum síðustu áratugi. Sem stendur skapa skólarnir og forskólastofnanir ekki Þau umhverfisskilyrði, sem þyrfti til að efla músíkalska fjáningarmöguleika barna, þroska hreyfingarskyn þeirra, efla músíkalskt ímyndunar- og sköpunarafl og stuðla að filfinningalegu jafnvægi. Til þess er ekki nógu vel búið að tónlistinni sem forskóla- og skólagrein. En jafnvel Þótt aðbúnaður að tónlistinni væri góður í þessum stofn- anum, getur sá aðbúnaður og sú aðhlynning aldrei kom- 13 í staðinn fyrir tónlistariðkun á heimilinu. Ég á hér ekki við þá tilviljunarkenndu snertipunkta, að barn hlusti é hljómplötu af og tiÉ heldur það, að foreldrar, og þá sérstaklega móðirin, skapi það músíkalska „andrúms- l°ft“, sem nauðsynlegt er til þess að tónlistaráhugi barnsins fái að vaxa og dafna. Þetta er ekki hugsanlegt, nema foreldrarnir séu nægi- lega vel upplýstir til þess að vita, hvernig á að skapa °9 nýta slíkt andrúmsloft. Einnig verða þeir að vilja það, éður en þeir vita það. Viljinn og óskin til að framkvæma eitthvað eru aftur á móti háð þeirri umhverfisþjálfun, sem foreldrarnir sjálfir hlutu og koma til með að hljóta, mati þeirra verðmætaþátta og þjálfun þeirrar verðmætisvit- endar, sem þroskast hefur hjá þeim. Þar með iokast víta- þringurinn, Því varla er von til, að heimilin geti bætt úr biúsíkölskum næringarskorti barnanna, fyrr en foreldr- arnir sjálfir hafa hlotið breytta meðvitund til þessara Þétta gegnum sína eigin skólagöngu, í breyttum skól- Urn. sem kunna að meta, nýta og beita tónlist í uppeldi. Vitundarbreytingin og þar með viðhorfið til tónlistar sem lyftistangar í uppeldi tekur þvi a. m. k. tvær kyn- s|óðir. Þetta er ekki ýkja langur tími, ef höfð eru í huga hraðalögmál breytinga í skólakerfum. Þróunin beinist öll í þá átt, að þáttur heimila í upp- eldi barna verði minnkandi í framtíðinni, en þáttur for- skóla og skóla vaxandi. Því er mikilvægt, að þessir þættir forskóla- og skólastarfsins verði vel úr garði gerðir; Þernið má ekki vera vannært frá múslkölsku sjónarmiði. Eins og þegar hefur verið sagt, gegnir músíkölsk tján- lnS mikilvægu hlutverki I þroskun sköpunar- og (mynd- Unarafls og stuðlar að tilfinningalegu jafnvægi barnsins. Það er því einkar áríðandi, að iðka tónlist sem nokkurs konar fyrirbyggjandi vernd bæði sálar og líkama. Það 9efur auga leið, hve mikilvæg hreyfingarþjálfun er ung- Uni börnum. Mörg þeirra koma í skólann vanþroskuð á Þessu sviði. Við köllum þessi Þörn klaufa í daglegu tali, en gerum litið til að bæta úr þessum mótoriska skorti. Því miður virðist leikfimikennslan ekki miða að því að ráða bót á þessu á nægilega kerfisbundinn hátt. 6—7 ára barn á fullt [ fangi með að ráða við alls konar mótor- iska erfiðleika, t. d. að þroska grófhreyfingar í fínhreyf- ingar (skrift). Hér gæti hreyfingarþjálfun í sambandi við tónlist gert mikið gagn. Náið samstarf milli leikfimi- kennara og tónlistarkennara gæti hér orðið til blessunar. Mikilvægur þáttur í tónlistarkennslu barna er að þroska músíkalskan smekk þeirra og skilning þannig, að þau séu fær um að beita hlutlægu músíkölsku mati og taka sjálfstæða afstöðu til tónlistar sem neytendur. Sá hljóðheimur, sem umlykur okkur öll, er orðinn þannig, að við erum ekki lengur óháð honum sem neytendur. Á þetta ekki aðeins við um þann daglega hávaða, sem umlykur okkur og sem tilheyrir vandamálum eins og umhverfis- vernd, heldur er hér átt við það, að hið kapitalíska þjóð- félag skapar músíkalskar þarfir hjá börnum og ungling- um f samræmi við þörf iðnaðarins til að koma fram- leiðslunni til neytandans. Börn og unglingar eru áhrifa- gjörn og sérlega opin fyrir tízkufyrirbærum, jafnt í tónlist sem öðru, t. d. klæðaburði. Hljómplötuiðnaðurinn hefur fyrir löngu uppgötvað þessa viðskiptavini sína og beitir kænlega listum markaðslögmála og skoðanamótunar til að selja vöru sína. Þessi beini og óbeini áróður gerir börn og unglinga háða vörunni og hringurinn framleiðsla- eftirspurn lokast mjúklega. Fjölmiðlarnir eru einn sterk- asti áróðursaðilinn í þessu sambandi, bæði meðvitað og ómeðvitað. Það er einn veigamesti þáttur í tónlistaruppeldi að þroska hæfileika barna og unglinga til sjálfstæðs músik- alsks gæðamats, sem byggist á þekkingu efnisins. Ein- ungis á þann hátt geta börn og unglingar tekið sjálfstæða og óháða afstöðu til tónlistarframleiðslunnar sem neyt- endur, i staðinn fyrir að láta stjórnast af tizku- og neyzlu- lögmáli, sem byggist á lægsta hugsanlega samnefnara. Tónlistariðjuhöldar seilast djúpt ofan i vasa æskufólks og njóta allra fríðinda tll þess, meðan skólarnir þjálfa ekki nemendur sína til gagnrýnins neyzluhugsunarháttar. Tónlistaruppeldi I þessum skilningi hefur þvi einnig pólitískar hliðar, í víðustu túlkun orðsins. En yfirfærslu- möguleiki og meðæfingarþáttur slíks uppeldis skyldi ekki vanmetinn. Þroskun á listrænu mati og skilningi er hæfi- leiki, sem þegn í nútímaþjóðfélagi þarf sífellt að geta beitt við margvíslegar aðstæður, ef hann á ekki að verða undir í baráttunni við meðalmennskuna. Leiðin til sliks þroska liggur gegnum þjálfun, sem byrjar við forskóla- aldur og endar aldrei. Alhæfingargildi þjálfunar vitsmunaþátta og tilfinninga- leg auðgun hjá þeim Þörnum, sem njóta vel uppbyggðs tónlistaruppeldis frá unga aldri, er veganesti, sem barnið þarf nauðsynlega á að halda á lífsleiðinni, ef það á ekki að verða varnarlaust gegn hinum margvíslegu umhverfis- áhrifum óskipulagðra og skipulagðra hljóða (tónlistar). Aðeins með slíka þjálfun að baki getur barnið valið og hafnað samkvæmt eigin verðmætamati, þ. e. tekið sjálf- stæða afstöðu til listrænna fyrirbæra. MENNTAMÁL 103

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.