Vorið - 01.03.1947, Side 18

Vorið - 01.03.1947, Side 18
14 VORIÐ það þú sjálfur? Getur þú ekki hjálpað mér til að komast eitt- livað burt frá þessum leiðinlegu bókum — hjálpað mér til að kom- ast til ævintýralandsins. Veiztu ekki hvar það er? ÓLI LOKBRÁ: Jæja, þú hefur meiri áhuga fyrir því en skóla- bókunum þínum. Jú, ég þekki það vel. Þangað förum við nú báðir eftir andartak. PALLI: Er það ekki fjarska langt héðan? Eigum við að ganga alla leiðina? ÓLI LOKBRÁ (hlæjandi): Þetta var þér líkt, lati Palli. Jú, víst er það langt í burtu héðan. En nú s'kuhim við sjá til. Hérna eru sjö mílna skórnir. Taktu af þér skóna og farðu í þessa í snatri. PALLI (tekur af sér skóna — hefur augun alltaf lokuð): Er þetta satt? Þetta verður gaman! ÓLI LOKBRÁ: Já, flýttu þér bara. Sjáðu, nú erum við ferðbúnir. Nú tekur þú í hönd mína og svo leggjum við af stað og höfurn sjö rnílur í hverju skrefi. Þú hefur víst aldrei farið svo hratt yfir, Pahi minn. (Þ.eir hverfa út unr dyrnar, Óli á undan, en Palli á eftir með lokuð augun). 2. ÞÁTTUR. (Kóngurimi i Ævintýralandi situr i her- bergi sinu ásamt þretnur ráöherrum. — Hann ber hórónu á höfði, hefur gleraugu, litur mjög öldurrnannlega úl og er súr á svip. Ráðherrarnir eru einnig áhyggjufull- ir og hafa slóra bunka af skjölum fyrir framan sig á borðinu, er þeir lita í öðru hvoru, hrista höfuðin og líta aflur i skjölin ). KÓNGURINN: Æ, æ, þaðer alltaf einhver ófriður og eitthvert arg. Ef ég væri ekki kóngur hér í Æv- intýralandi, vildi ég vera kominn þúsund rnílur í burtu héðan. 1. RÁÐHERRA: Mér fellur þetta illa, vegna yðar hátignar. (Palli og Óli Lokbrá korna inn. Palli lítur undrandi í kringum sig og hefur nú opnað augun. Gengur síðan að stól og sezt á Iiann. Óli Lokbrá stendur við lilið hans, en enginn sér þá). PALLI (við Óla Lokbrá): Þetta get- ur ekki verið kóngurinn yfir Æv- intýralandi. Hann er eitthvað svo súr og leiður á svip. Og hér sézt engin drottning og engin prins- essa (gægist út), og enginn blóma- garður. Og svo er hér húðarrign- ing þar að auki. OLI LOKBRÁ: Já, en ég skal segja þér, Palli minn, að það eru til margs konar ævintýralönd. Sum ævintýralöndin eru fyrir iðin, dugleg og góð börn, og svo eru önnur lyrir óþæg börn. Þetta t. d. er fyrir löt börn. PALLI (ákafur): Ég er ekki latur. Mér þykja bækurnar Irara — bara leiðinlegar.

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.