Vorið - 01.03.1947, Side 19

Vorið - 01.03.1947, Side 19
VO RIÐ 15 KÓNGURINN (tekur eftir Palla): Hvað — hvernig hefur þessi þrjót- ur komizt hér inn? Verðirnir van- rækja skyldur sínar. Og svo leyfir hann sér að sitja í návist kon- ungsins. Stattu upp, úrþvættið þitt. Hvaða erindi átt þú liingað? PALLI (sprettur á fætur): Ég — eg — ég hélt, ég ætlaði bara að leika mér við prinesssuna. KÓNGURINN (fokvondur); í mínu landi fær enginn að leika sér. Hér er lieldur engin prins- essa. Hér eru aðeins rnenn, sem verða að vinna. HIRÐMAÐUR (kemur inn): Yðar hátign. Tröllin uppi í fjöllunum sækja lengra og lengra fram. Menn konungsins eru á undan- haldi og margir hermennirnir leggja á flótta undan tröllunum. KÓNGURINN: Sendið fleiri her- menn af stað. Þú getur tekið strákinn þarna með. Hann getur barið bumbu. PALLI (fer að gráta): Ég J^ori alls ekki að berjast við tröllin! ANNAR HIRÐMAÐUR: Yðar há- tign. Krákurnar í skóginum hafa gert uppreisn. Hermennirnir eiga i höggi við tröllin og reyna að hrekja þau til baka, svo að við urðum að senda heilan her af drengjum með lurka og prik til að hrekja þær burt. KÓNGURINN (óþolinmóður): Allt gengur hér á tréfótum. Er jrá húið að sigrast á krákunum? HIRÐMAÐURINN: Ekki ennþá, yðar hátign. Margar krákur hafa fallið í orrustunni, en hinar, sem lifandi eru, fljuga á eftir drengj- unum og höggva í andlit þeirra með nefjum sínum. KÓNGURINN: Sendið þá fleiri. Takið þennan lata slána þarna með ykkur. PALLI (kjökrar): U-hu, ég þori það ekki. Þær höggva úr mér augun og tæta sundur á mér nefið. KONGURINN: Hér er ekki spurt að því, hvað þú vilt. Takið strák- inn. PALLI (þrífur í handlegginn á Óla Lokbrá): Ó, hjálpaðu mér! ÓLl LOKBRÁ: Jæja, þarna getur jni nú séð, að Jrað er til ýmislegt \ erra en Jxað að lesa í skólabó'kun- um sínum. En nú leggjum við af stað. Nú er gott að hafa sjö mílna skóna. (Þeir fara út). KÓNGURINN (kallar á eftir þeim í dyrunum): Verðir, verðir! Tak- ið óþokkann fastan! 3. ÞÁTTUR. (Palli situr við sama. borðið og i fyrsta þatti og sefur). KAREN (kemur inn): Hvað er Jretta, situr þú hér sofandi yfir bókunum? PALLI (hrekkur upp): Hvar er Óli Lokbrá, kóngurinn og tröllin? KAREN: Hvaða rugl er í þér, drengur? PALLI (nuddar augun): Æ, það var

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.