Vorið - 01.03.1947, Page 27
V O R I Ð
23
L i t i a m a m m a
Sjáið þið hana Siggu litlu,
sú er hýr á kinn.
Enda hefur hún eignazt dóttur,
angallítið skinn,
angalítið skinn,
angalítið skinn.
Láttu nú aftur ljósu augun,
litli anginn minn.
Ekki máttu væla og vola,
velluskjóð'an þín.
Þú átt að vera þæg við mömmu,
þrifin bæði og fín,
þrifin bæði og fín:,
þrifin bæði og fín.
Þú átt að vera ljúfa ljósið,
litla stúlkan mín.
Þú skalt heita Fríða-Fjóla,
fagurkinnan smá,
af jjví litl'u augun djúpu
eru fagurblá,
eru fagurblá,
eru fagurblá.
Komdu nú og kysstn mömmu,
kæra lipurtá.
Svo átt þú að sofna, vina,
sólskinsbarnið mitt.
Eg skal láta laga og búa
litla rúmið þitt,
lit'la rúmið þitt,
litla rúmið þitt.
Eg skal syngja sussu bía,
sólskinsbarnið mitt.
H. J. M.