Vorið - 01.03.1947, Side 36

Vorið - 01.03.1947, Side 36
32 VORIÐ Dægradvöl Hve gamall ertu? E£ þú vik fá sönnur á, hve gamall ein- hver er, gerir þú það sem hér segir: Fyrst biður þú viðkomandi mann að margfalda raðtölu fæðingarmánaðar síns með 2. Síðan bætir hann 5 við þá tölu og margfaldar þú útkomu með 50. Við þessa nýju tölu leggur liann svo aldur sinn, en dregur svo 365 frá þeirri tölu. Loks legg- ur hann 115 við. Þá er eftir að vita, hvað þessi lokaútkoma merkir. Fyrsta talan merkir fæðingarmánuðinn, en hin talan eða tölurnar merkja aldur mannsins. menn víða á landinu einkum í sveitun- um. Útsölumenn fá 20 prc. í sölu- og inn- heimtulaun. Með kærri kveðju. Ú tgefendur. Við skulum taka dæmi og hugsa okkur, að viðkomandi maður sé 15 ára og sé fæddur í ágúst. Þá lítur þetta þannig út: 2-8 =16 Bæta 5 við = 21 Margfalda með 50 = 1050 Bæta aldrinum við (15) = 1065 Draga frá 365 = 700 Bæta við 115 = 815 Talan 8 merkir þá mánuðinn ágúst, en talan 15 merkir aldur mannsins. Reynið þetta á ykkur sjálfum, eða ein- hverjum öðrum. Refur hafði komizt inn í hænsnagarð og hélt sér þar veizlu. Svo læddist hann út í skóginn aftur í góðu skapi. „Ég hef góða von um flciri svona mál- tíðir," hugsaði refurinn, „því að ég veit, að hænurnar, sem ég drap, eru aðeins fjórði hluti af þeim, sem eftir eru. Ef ég get náð þeim öllum,«fæ ég alls 15 hænur." Hve margar hænur hafði refurinn tekið, og hve margar voru eftir? Leikflokkur barnaskólá Vopnafjarðar.

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.