Vorið - 01.12.1965, Page 4
hann nái eyrurn barnanna. Af bókum hans má nefna „Riddarana sjö,“ sem
er byggð á gömlum sögnum, og „Dísu á Grænalæk“ í 4 heftum. Síðasta bók
hans er „Ævintýraleiðir.“ Gerist sii bók á Kanaríeyjum, en þar dvaldi Kári
um tíma á síðastliðnu ári. Úr bókinni er birtur kafli hér á eftir.
En Kári hefur ekki aðeins ritað barnabækur, hann er einnig Ijóðskáld
og hefur sent frá sér þrjár Ijóðabækur. Tvö af kvæðum hans birtast hér á
eftir, en mörg kvæði hans eru Ijóðræn og hugnæm.
Kári hefur borið gæfu til að festa á pappír margar þær sögur, sem hann
segir börnunum í skólanum. Margar þeirra eru í œvintýralegu formi og
aðgengilegar fyrir börn. Jafnframt eru þær allar fallegar og stuðla að fögr-
um og siðrænum hugsunarhætti barnanna. En það er mikilvœgt að eignast
slíkar bækur við þeirra hœfi.
Vorið þakkar vináttu Kára fyrr og síðar og birtingarleyfi á sögukafla
þeim og Ijóðum, sem fara hér á eftir.
E. Sig.
Á ÆVINTÝRALEIÐUM
BÓKARKAFLI EFTIR KÁRA TRYGGVASON
í dag er milt og gott veður, en ofur-
lítil þoka hvílir í hlíðum fjallanna.
Klukkan tíu árdegis leggur Róbert Kall-
ing1 af stað í hringferð um eyna með
börnin hans Pablos og Normu litlu,
dóttur Manuels garðyrkjumanns.
Fyrst er ferðinni heitið upp í háhlíð-
ar eldfjallsins Teide, og þaðan áleiðis
til suðurstrandarinnar. Kalling ekur ró-
1 Englendingur á ferSalagi, sem tekið
hefur óstfóstri við börnin.
lega inn á veginn, sem liggur upp í Oro-
tavadalinn. Vegurinn er þröngur, en
mjög haglega gerður. A báðar hliðar
eru háir steingarðar eða sundurklofnir
bergveggir, en gróskumikil pálmatré og
annar suðrænn gróður prýðir umhverf-
ið.
Fyrr en varir breytir landið um svip.
Og Orotavadalurinn blasir við augum.
Hann er víður og mikill yfir að líta.
Og í raun og veru er hann einn sam-
felldur bananaakur hlíða á milii.
146 VORIÐ