Vorið - 01.12.1965, Qupperneq 8

Vorið - 01.12.1965, Qupperneq 8
GLEÐI, SEM ENDAR MEÐ SORG Heiða iitla var komin í annan bekk, og bráðum var hún 9 ára. Hún bafði hugsað sér að bjóða nokkrum vinkon- um sínum úr bekknum í afmælisveizl- una og nú var þessi mikli dagur að renna upp. Það var sunnudagur, svo að hún þurfti ekki að sinna skólanum þennan dag. Mamnia hennar var búin að baka heilmikið, svo að nóg var nú á veizluborðið. Klukkan 3 komu fyrstu gestirnir. Það var Magga Jóns og Þóra Sveinsdóttir. Þær komu auðvitað með sínar afmælis- gjafir, því að afmælisgjafirnar setja nú mestan hátíðarsvipinn á alla afmælis- daga. Næst kornu þær Fríða Geirs og Aðalbjörg Jónsdóttir. Þær komu auð- vitað með sínar afmælisgjafir. Síðast komu svo Erna Bjarnadóttir, Gerður Pálsdóttir og Svava Svavars. Alls voru telpurnar 7, allar úr bekk Heiðu litlu. Svava kom síðast inn úr dyrunum og um leið og hún gekk inn gólfið rétti hún Heiðu dálítinn kassa. Það leit alveg éins út og skókassi, og Heiðu datt strax í hug, að í honum væru inniskór. Því að venjulegir skór voru svo dýrir. Hejða lagði hann á borðið og forvitni hennar var svo mikil, að vita hvað í kassan- um væri, að hún gekk þegar að því að leysa bandið utan af honum. En mikil var undrun hennar og gleði, þegar hún / sá, að í kassanum var stálpaður kettl- ingur, sem varð frelsinu feginn og stökk þegar út á stofuborðið. „Almáttugur! Lítill kettlingur!“ hróp- aði Heiða og allar telpurnar snerust í kringum þessa óvenjulegu afmælisgjöf. „0, er hann ekki indæll?“ spurði Fríða Geirs. „En hvernig er hann eigin- lega litur?“ spurði Gerður. „Ja, hann er einhvern veginn gul- brúnn með hvíta bringu,“ sagði Svava, sem komið hafði með þetta metfé. „En máttu hafa hann, Heiða?“ spurði Erna. „Já, hún má hafa hann,“ sagði Svava. „Mamma mín spurði mömmu hennar, hvort hún mætti gefa lienni kettl- ing og hún sagði, að ég mætti það.“ Allar hinar afmælisgjafirnar hurfu í skuggann fyrir þessari einu, og það var varla litið á þær. Það var ekki laust við að gefendurnir yrðu fyr.ir dálitlum von- brigðum, en þau gleymdust fljótt, þeg- ar sezt var við veizluborðið og farið var að drekka súkkulaðið og borða kök- urnar. Telpurnar léku sér svo dálítið ó eftir, en síðan fór hver heim til sín. Það er nú af kettlingnum að segja, að hann óx og dafnaði og varð með hverjum deginum skemmtilegri og snið- ugri. Heiða hafði svo gaman að þess- um litla, fallega kettling, að hún þreytt- ist aldrei á að skoða hann og leika við hann. Henni var líka farið að þykja svo vænt urn hann, að hún mátti helzt aldrei af honum sjá. Hana langaði til að láta hann sofa hjá sér á nóttunni, en það vildi mamma hennar ekki. En hún var með hann undir vanganum heilu tím- 150 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.