Vorið - 01.12.1965, Síða 12

Vorið - 01.12.1965, Síða 12
konan að heiman — og talaði við konu kennarans. Auðséð var, að hún hafð.i grátið. „Jóhann, þú átt að koma með mér heim,“ sagði hún. „Hvers vegna? Hvað er að?“ Lovísa þagði. Hún kom ekki upp nokkru orði, en sneri upp á svuntuhorn- ið sitt og leit vandræðalega til kennar- ans. „Drengur minn,“ sagði Friðriksen, „við erum öll svo hrygg. En við verðum að segja þér það. Móðir þín er dáin.“ Jóhann varð aftur var við, að kenn- arinn lagði handlegginn yfir herðar honum. Louisa grét aftur. „Þú ert svo góður drengur,“ sagði kennarinn umhugsunarlaust. Jóhann stóð og horfði út í garðinn. Einhver þungi lagðist yfir huga hans og hann fann, hvernig einhver skuggi óx þar inn.i fyrir. Hægt og hægt breiddi hann úr sér. Hann heyrði til barnanna á leikvang- inum. Úti í gerðinu flögruðu nokkrir grátittlingar fram og aftur. Hann beygði höfuðið. Skugginn í huga hans jókst. Þunginn varð meiri, en enn fann hann þó ekki til sársauka. En skyndileg sorg þarf nokkurn tíma til að hrjótast inn. Fyrst eftir nokkurn tíma verður hún að vissu. — En með sorginni kemur allt, sem hún geymir: Sársauki, söknuður, einmana- kennd. Allt breyttist hjá Jóhanni. Hann hafði séð móður sína í kistunni, föla og gagntekna kyrrð. Lífið missti liti sína, og aðeins eitt var eftir sem sárs- aukakenndur raunveruleiki: mamma hans var dáin. Þegar hann vaknaði morguninn eftir í litla herberginu inn af eldhúsi Louisu, og hann heyrði hana og mann hennar tala saman í liálfum hljóðum, meðan þau borðuðu, gat hann ekki skilið, að raddir þeirra voru óbreyttar. Maðurinn var að fara til vinnu sinnar. Hvernig gat hann haft áhuga á því í dag? Gegnum gluggann heyrði hann há- vaða fráj nágrannabænum. Tveir af vinnumönnunum voru að spenna hesta fyrir vagn. Nú hlógu þeir. Hátt og hljómmikið. Litlu síðar heyrði hann manninn taka hjólhestinn fram og hjóla burt frá húsinu. Lovísa kom og opnaði dyrnar gætilega inn til Jóhanns. Hann lá graf- kyrr með lokuð augu. Hann heyrði Lov- ísu andvarpa og loka dyrunum aftur. Jóhann grét. „Góði guð! Láttu það vera draum! Láttu mig vakna af draumnum og vera heima hjá mömmu aftur! Láttu mömmu vera lifandi! Þú vilt ekki taka mömmu frá mér!“ Það kom einhver inn til Lovísu. Það var Maríanna, kona smiðsins. Þó að þær töluðu í hálfum hljóðum, gat hann heyrt, hvað þær töluðu um. „Útför hennar verður virðuleg,“ sagði Lovísa. „En hvað verður um Jóhann?“ spurði Maríanna. „Æ, já, aumingja drengurinn! Ég hef skrifað móðurbróður hans í dag.“ „LTm aðra er ekki að ræða?“ „Nei, það var ekki neitt gott á milli þeirra. Móðurbróðirinn er efnaður, en 154 VORIÐ

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.