Vorið - 01.12.1965, Síða 15

Vorið - 01.12.1965, Síða 15
upp úr hinu brosandi austjózka þorpi og íluttur út í liið eyðilega, vestjózka hérað. Það hefði verið erfitt að halda lífinu áfram hér meðal manna, sem ekk- ert hugsuðu um, hvað hann átti erfitt. Þetta var fyrir honum, eins og þetta fólk lifði fyrir eittlivað, sem vær.i honum alveg óviðkomandi. Hann varð einn að bera sínar áhyggj- ur. Og það gerði hann. Fjölskylda frænda hans var góð við hann. Það var ekki ástæða til að kvarta. En þau skildu hann ekki. — ■— Enginn var vondur við hann. Ekki lieldur drengir frænda hans. Og í skól- anum var tekið vel á móti honum, þegar börnin höfðu athugað hann í nokkra daga. — En það sem að var, var það, að innra með honum var eitthvert tóm, sem gerði það að verkum, að hann stóð utan við allt, bæði starfið og leikina. — Því var aðeins öðruvísi varið með Kristínu en hin börnin. Hann leit einu sinni til hennar í skólanum, og hún brosti til hans. Ofurlitlu, kyrrlátu brosi. Og þetta bros festist í huga hans. Það Ijómaði upp í hugskoti hans í' hvert skipti og hann hugsaði um það. Kristín bjó alein með föður sínurn í útjaðri mýrarinnar. Móðir hennar var dáin. Ef til vill var það af því. —• — Jóhann hafði grafið sér fylgsni og byggt lítinn kofa langt í burtu í einum heiðarásnum. Hann var svo stór, að hann gat setið þar inni. Hann hafði velt þangað inn steini, sem hann notaði fyrir borð. Hann fór út í þennan kofa, þegar hann vildi vera einn. Dag nokkurn gekk Kristín þar fram * VORIÐ 157

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.