Vorið - 01.12.1965, Síða 22

Vorið - 01.12.1965, Síða 22
ur og hefur sent mér bréf — og boðar mig á sinn fund. HRINGJARINN: Má ég fá að sjá bréf- ið? (Tekur við bréfinu og les það). Hér stendur aðeins, að þú eigir að mæta í höllinni á morgun klukkan 12. Það er ekkert að óttast. PRESTURINN: Jú, því að kóngurinn er vanur að spyrja strangt og láta menn ráða gátur. Hann getur ef til vill spurt um eitthvað, sem ég get ekki svarað. Og þá missi ég hempuna og kragann. Af því að þú ert svo dug- legur að svara, gætir þú ekki svarað fyrir mig? Þú skalt fá lánaða bæði hempuna og kragann. HRINGJARINN: Það er nú svona og svona að gabba sjálfan kónginn. PRESTURINN: Það fær hann aldrei að vita. HRINGJARINN: Þetta er hættulaust fyrir mig. Ég skal mæta fyrir þig, ef þú vilt. PRESTURINN (glaður); Þakka þér kærlega fyrir. Þú ert ágætur. Vertu sæll og gangi þér vel. (Þeir kveðjast með handabandi, hann tekur hattinn af borðinu og fer). 2. þáttur. (Kóngurinn situr í hástól sínum með kórónu á höfði og veldissprota í hendi. Hann er í rauðri skikkju með hvítum köntum. Hringjarinn stendur fyrir fram- an hann í hempu með prestakraga. KÓNGURINN: Jæja, þá ertu kominn. HRINGJARINN: Já, ég er kominn. KÓNGURINN: Þú, sem ert svo dugleg- ur að kalla og slá um þig á vegum úti, þú ert eflaust einnig duglegur að svara spurningum. HRINGJARINN: Það veit ég ekki. En ég get reynt. KÓNGURINN: Geturðu sagt mér, hve langt er frá austri til vesturs? 164 VORIÐ

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.