Vorið - 01.12.1965, Blaðsíða 35

Vorið - 01.12.1965, Blaðsíða 35
AXEL: Heldur þú, aÖ hann geri það? Svo heimskur er hann varla. KARL: Ef bekkurinn segir honum, að liann verSi að gera það, þá getur hann varla komizt hjá því. En skemmtilegt verður það ekki fyrir hann. BÚI: Þetta er líklega nokkuð góð til- laga, drengir. Stígur verður þá ekki grunaður lengur, og við sleppum við að vera samsekir Runa. DAVÍÐ: Eru allir með því, að við töl- um alverlega við Runa um þetta? Það væri gaman að fá allt þetta upplýst. Það hreinsar andrúmsloftið. AXEL: En ef Runi vill nú ekki? KARL: Ef við gefum Runa tækifæri og hann notar það ekki, þá sýnist mér rétt, að við segjum hver það er, sem ★ VÍÐA SJÁST MANNA- MYNDIR í KLETTUM. HÉR ER EIN ÞEIRRA. tók peningana, ef kennarinn spyr. En fyrst skulum við sjá til, hvort Runi vill ekki segja það sjáifur? AXEL: Þegar ég fer að hugsa um þetta, sé ég, að þetta er ekki svo vitlaus hug- mynd. Við hjálpum kannski Runa með þessu til að verða heiðarlegur drengur. DAVÍÐ: Heyrið þið, drengir, það ligg- ur í augum uppi að maður á að koma heiðarlega fram við félaga sína og taka á sig hluta af þeirra ábyrgð. En nú höfum við séð, að það er hægt að gera rangt í skjóli þessarar sam- ábyrgðar. En getum við nú ekki orðið sannnála um að nota okkur það vald, sem því fylgir að halda hópinn til þess að gera aðeins það sem rétt er? Þýtt úr sœnsku. — H. ]. M. VORIÐ 177

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.