Vorið - 01.12.1965, Side 36

Vorið - 01.12.1965, Side 36
STÚLKAN, SEM VISSI EKKI. AÐ HÚN VAR PRINSESSA Það var einu sinni fátækur viðar- höggsmaður, sem fann litla stúlku úti í skógi. Hún var svo fríð og hafði svo fagra, gyllta lokka, að hann tók hana með sér og fór með hana heim til konu sinnar og sona sinna sex. Þau kölluðu hana Gullsól og öllum þótti vænt um hana, og hún ólst þarna upp sem dóttir viðarhöggsmannsins. Hún varð mjög fögur, og þegar syn- irnir fóru að fara að heiman einn af öðrum út í heiminn og konan dó, var Gullsól það eina, sem hann hafði til að lifa fyrir. Hún hélt öllu í röð og reglu í húsinu, og öllum líkaði vel við hana. Dag nokkurn, þegar prinsinn reið þar fram hjá, kastaði hann vingjarnlegri kveðju á þessa fallegu, ungu stúlku. Gullsól hrosti á móti og frá þeim degi gætti hún þess ætíð, að standa í dyrun- um, þegar hann reiö fram hjá. Það gerði hann næstum hvern einasta dag, og þeg- ar hann var neyddur til að fara aðra leiÖ, var Gullsól svo óhamingjusöm, að hún grét. Dag nokkurn, þegar hún var að baka brauö, átti gömul kona leið þarna fram- hjá, og hún bað Gullsól um að gefa sér eitthvað að borða. Gullsól lagði til hlið- ar brauðið, sem viðarhöggsmaðurinn átti að fá, en gaf konunni helminginn af hinu. í sama vetfangi kom svartur köttur hlaupandi. Hann nuddaði sér upp að gömlu konunni, og þá mælti hún: „Vesalingurinn litli, hann er greini- lega svangur!“ Þá tók Gullsól hinn helminginn af brauðinu og gaf kettinum. Hann var ekki seinn á sér að eta það. Gullsól gaf honum líka fulla mjólkurskál, því að hún var mikill dýravinur. Konan spurði hana, hvernig henni liði, og hún sagði henni frá því, að hún væri alltaf óhamingjusöm þá daga, sem prinsinn riði ekki framhjá. Það sem eftir var dagsins beið Gull- sól árangurslaust eftir viðarhöggsmann- inum, og að lokum fékk hún að vita, að konungurinn hafði látiö varpa honum í fangelsi, af því aö hann hafði höggvið nokkur tré, sem hann hafði ekki leyfi til að fella. Gullsól varð mjög sorgmædd, því að hún vissi ekki, hvernig hún gat hjálpað honum, en þá átti gamla konan leiö framhjá aftur. Hún mælti á þessa leið: „Þú varst góð við mig og köttinn í gær og nú skal ég gera þér greiöa í stað- inn. Farðu upp að konungshöllinni og segðu, að þú ætlir að gera við glugga- tjöld, sem eru inni í höllinni. Þjónninn mun þá fylgja þér inn í herbergi, þar sem fögur silkigluggatjöld hanga fyrir gluggum, en á einum stað á þeim er rifa. 178 VORIÐ

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.