Vorið - 01.12.1965, Page 38

Vorið - 01.12.1965, Page 38
„Eg hef mikla bón íram aft íæra, yÖar hát,ign.“ „Komdu bara með hana,“ sagði kon- ungurinn. Hann var strax orðinn hrif- inn af þessari litlu, saklausu stúlku. „Þá ætla ég að biðja yður um, að fósturföður mínum verði hleypt úr fang- elsinu,“ sagði hún um leið og hún kast- aði sér á kné íyrir framan konunginn. Konungurinn varð hrærður og spurði, hvernig hún þekkti v.iðarhöggsmanninn, og þá sagði hún honum frá því, að hann hefð fundið hana í skóginum og hefði ávallt verið henni svo góður. Konungurinn gaf skipun um, að við- arhöggsmaðurinn skyldi látinn laus, og bað einnig um, að fá að tala við hann. „Segið mér, var ekki eitthvert merki eða tákn á iitlu stúlkunni, sem þér fund- uð í skóginum?“ spurði hann, þegar viðarhöggsmaðurinn var kominn. „Jú, yðar hátign, um hálsinn hafði hún silkisnúru og í henni hékk messing- hnairpur. Eg hef ávallt varðveitt hann vel, þó að hann sé ef til vill ekki mikils virði.“ „Látið mig sjá hann,“ mælti kon- ungur, og viðarhöggsmaðurinn dró hann upp úr vasa sínum. Konungurinn virti hnappinn fyrir sér stundarkorn, en mælti síðan: „Hann er úr dýrasta gulli og var í eigu bróður míns, sem var konungur hér í næsta ríki. Hann og drottning hans höfðu verið í heimsókn hér hjá okkur með litla dóttur sína. A heimleiðinni réðust ræningjar á þau, sem tóku þau og drápu. En þessari litlu dóttur þeirra hafa ræningjarnir þó gefið líf. og það er engin önnur en hún Gulisól, sem þú bjargaðir. Hún er raunveruleg prins- essa og erfingi að öllu nágrannaríkinu.“ Þá varð viðarhöggsmaðurinn svo glaður, að hann vissi ekki í hvorn fótinn hann átti að stíga, og Gullsól sjálf var gráti nær af gleði, þegar hún heyrði, að hún var raunveruleg prinsessa. Konungurinn launaði viðarhöggs- manninum og öllum sonum hans og Gullsól bjó í höllinni, þangað til hún fluttist til síns eigin ríkis. Hún var ekki alls kostar ánægð með það, en hún kom fljótlega aftur, þar sem prinsinn vildi giftast henni. Það var haldið brúðkaup og mikil veizla, og þegar konungurinn dó, urðu Gullsól og prinsinn drottning og konungur yfir báðum ríkjunum. Þýtt úr norsku Sigríður J. Hannesdóttir. Kennarinn: — Ilvað er mænan? Drengurinn: — Það er dálítið, sem geng- ■ ur [ivcrl í gegnum fólk. Á öðrum enda hennar er höfuðiö — og á hinum erum við! 180 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.