Vorið - 01.12.1965, Side 42
burt. Þeir ferðuðust bæði nótt og dag
og loks komu þeir að næsta kóngsríki.
A bekk í garðinum sat falleg prins-
essa í Ijósbláum kjól og kórónu á höfði.
Hundurinn fór til hennar og sagði:
— Eg er svangur og þyrstur, vof-vof,
getur þú gefið mér ofurlítinn mat og
vatn? Þá varð hún ennþá reiðari en hin
prinsessan og sagði: Burt með þig,
hundur. Þú ert svo ljótur, að ég vil ekki
hafa þig í garðinum mínum. Og hún rak
hann burt.
En prinsinn beið fyrir utan og hafði
fylgzt með öllu. Hann varð nú enn
hryggari en í fyrra skiptið. Nú var að-
eins eitt konungsríki eftir. Ef til vill fæ
ég enga drottn.ingu, hugsaði hann.
Svo borðuðu þeir og héldu ferðinni
áfram. Þeir ferðuðusl bæði dag og nótt
og þegar þeir komu að þriðju höllinni,
var Iitli hundurinn svo þreyttur og solt-
inn, að hann gat varla gengið. Prinsinn
vísaði hönum inn um hallarbliðið og
hann fetaði sig hægt upp að bekknum,
þar sem prinsessan sat. Hún var ennþá
laglegri en hinar prinsessurnar. Hund-
urinn leit til hennar biðjandi augum og
sagði: — Eg er þyrstur og svangur vov-
vov, viltu vera svo góð að gefa mér
svolítið að éta og drekka?
— Nei, hvað þú erl snotur, sagði
pr.insessan og brosti vingjarnlega. —
Komdu með mér og þá skaltu fá eins
mikið að borða og drekka eins og þú
vilt. Auminginn litli, fylgdu mér.
Svo fóru þau inn í stóra eldhúsið og
þar fékk hann bæði mjólk og fiskibollur,
kjötbollur og margt fleira, sem hún fann
í skápnum. — Borðaðu eins og þú getur,
sagði prinsessan og brosti vingjarnlega.
— Nam, nam, sagði hundurinn. Og
hann át eins mikið og hann þoldi.
Aldrei hafði honum þótt neinn matur
eins góður. — Vov, sagði hann og
sleikti út um. Það merkti: Þökk fyrir
matinn. Og svo fylgdi hann prinsessunni
eftir út í fallega garðinn, þar sem voru
mjóir stígar, fagrir grasfletir og mikið
var af blómum og fa'llegur gosbrunnur.
Þar stóð pr.insinn. Og hann var ham-
ingjusamur, Því að nú hafði liann fund-
ið drottningarefnið sitt.
Ráðningar á gömlu gátunum á bls 189:
1. Ungbarn, fullorðinn, gamalmenni.
2. Sæbjörg.
3. Stjörnurnar.
4. Selurinn.
5. Sendibréf.
6. Blekbytta.
7. Höfuðfatið.
8. Skórnir,
184 VORIÐ