Vorið - 01.12.1965, Page 48
ORÐSENDING TIL LESENDA
i
Kœri lesandi.
Þessum árgangi Vorsins er hér með lokið. Þrjú börn, sem unnið hafa
verðlaun Vorsins og Flugfélags íslands fyrir ritgerðir, haja ferðast með
flugvélum um loftin blá á árinu, eitt til Lundúna, en hinn innan lands.
Ferðasögur þeirra með myndum birtast í nœsta árgangi.
Sennilega fáið þið, lesendur góðir, tœkifœri til að keppa um svipuð
verðlaun á nœsta ári. Hver ykkar skyldu þá hljóta verðlaunin?
Svo langar mig til að biðja ykkur um að reynast Vorinu vel. Það laun-
ar ykkur það með því að verða fjölbreyttara og skemmtilegra.
Það er þrennt, sem ég vil biðja ylckur um. Það er þetta:
í fyrsta lagi að greiða Vorið skilvíslega, bœði til útsölumanna og þeg-
ar ykkur er send póstkrafa fyrir árgjaldinu. Það er ekki heiðarlegt að
endursenda póstkröfur eftir að vera búinn að taka á móti tveimur eða
þremur heftum árgangsins.
í öðru lagi að útvega því nýja kaupendur og senda nöfn þeirra til af-
greiðslunnar. Ef hver kaupandi útvegaði einn nýjan áskrifanda, gæti
Vorið stœkkað mikið.
í þriðja lagi að senda Vorinu efni til birtingar. Ég veit, að mörg ykkar
geta sagt frá mörgum skemmtilegum og atliyglisverðum atburðum. Gott
er að myndir fylgi frásögnunum. Segið einnig álit ykkar á blaðinu.
Svo langar Vorið að lokum að biðja útsölumenn að senda Vorinu
myndir aj sér og nokkrar upplýsingar, t. d. um aldur og upplýsingar um
störf eða nám.
Utanáskriftin er:
V 0 R I Ð
Pósthólf 177,
Alcureyri.
190 VORIÐ