Vorið - 01.12.1972, Síða 6

Vorið - 01.12.1972, Síða 6
Honum ofbjóða aðfarirnar og fer heim að sofa, en við og við vaknar hann, því söngurinn gerist æ háværari eftir því sem á nóttina líður. Brátt verður nauðsyn að senda ein- hverja af eldri drengjum amtmannsins til náms í Danmörku, því að enginn latínu- eða menntaskóli er þá í Pæreyjum. Aðeins 14 ára varð náttúrubarnið frá Færeyjum að fara á heimavistarskóla í Danmörku, að Herlufsholm. Niels virðist ekki liafa unað sér sérlega vel þarna. Honum gekk námið heldur stirðlega, því að undirbúningurinn frá Færeyjum var engan veginn sambæri- legur við þá kennslu, sem Kaupmanna- hafnardrengirnir höfðu notið, enda sat hann eftir í bekk, og skólastjórinn skrifar um hann: „Niels Finsen er elskulegur drengur, en hæfileikarnir eru takmarkaðir og svo skortir hann algerlega allan dugnað. Og hálfu öðru ári síðar, þegar hann er fluttur í Reykjavíkurskóla, segir rektor- inn þar: „Ég er hræddur um það, Niels, að það verði aldrei maður úr þér.“ En þar fékk hann þó fyrst áhuga fyrir nátt- úrufræði og löngunin til þess að verða læknir lét þar fyrst á sér bæra. Hann er fermdur í Færeyjum af hinum nafnkimna Hammershaime, sem er vinur f j ölskyldunnar. Um þessar mundir skrifar hann Ólafi bróður sínum bréf: „Kæri Ólafur bróðir. Þakka bréfin þín. Vilhjálmur frændi var hér í gær og sagði, að ég ætti 11. ágúst að fara með „Díönu“ til Færeyja og þann 16. þaðan með „Arcturus“ frá Kaup- mannahöfn til íslands. Ég á að búa þar hjá ömmu og skólagjöld eru engin.“ Og í október 1876 tekur María amma hans á móti honum. Hún hefur verið ekkja í 4 ár. Þeim lyndir vel saman, ömmunni og drengnum, sem verður brátt augasteinn hennar. Skólagangan í Reykjavík verður honum fyrst í stað dálítið erfiður reynslutími. Bekkjarbræðurnir eru misjafnir að aldri og þroska, sumir eru þrítugir. Sjálfur er hann aðeins sextán ára. Og svo tefur mál- ið fyrir honum. Hann skrifar Ólafi 17. 10. 1876 smá lýs- ingu á nokkrum kennaranna: „Rektor er gamall maður, sem ekki hefur mikið að segja. . . er feitlaginn maður, sem þykii' sopinn góður. . . S. G. kennir okkur trúar- brögðin (mjög feitur og elskulegur) . . . P. M. kennari í sögu (mjög gamaldags og viðfelldinn)“ — Þetta lagast þó allt fljót- lega, og 2. des. 1876 skrifar hann Ólafi aft- ur: „Þetta, sem ég skrifaði síðast um kenn- arana eru ýkjur, mér falla þeir nú vel í geð. Námið gengur betur. Síðast var ég 14., en nú fimmti. Ég tala enn ekki ís- lenzku, en er farinn að skilja málið.“ Og svo lýsir hann skólahaldinu: „Ég fer á fætur kl. 8,30 og á að vera mættur í skól- anum kl. 7,50. Hann hefst með bæn, þ.e.a.s. fyrst er sunginn sálmur og því næst tónar einhver piltanna, svo les annar piltur bæn, og þá er sunginn sálmur. Þessi andakt tek- ur 12 mínútur. Allir piltar nefnast skóla- piltar. — Sama andakt er endurtekin á kvöldin kl. 10.“ Niels býr ekki nema 5—6 mínútna gang frá skólanum. En á óstund- vísi er tekið stranglqga. Honum fellur vel jafnréttisandinn í skólanum: „Fúxinn og dúxinn njóta jafnréttis meðal skólafélag- anna.“ Fer á „rall“ í skólanum og stöku sinnum í útreiðartúra. Hann eignast ís- lenzka vini, m.a. Sveinbjörn Sveinbjörns- son, síðar yfirkennara í Árósum, og Jón Helgason, síðar biskup, og kynnist frænd- um sínum, landfógetasonunum Hannesi og 6 VORlíJ

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.