Vorið - 01.12.1972, Qupperneq 24
Enn var komin jólanótt. Á borðinu stóð
grenitréð, og á því loguðu svo mörg ljós,
eins og himininn hefði hengt í það allar
stjörnur sínar.
1 herberginu voru þrjú börn, Hans,
Gréta og vöggubarn. Hans hafði verið gef-
inn sleði, Grétu brúða og vöggubarninu
fallegir litlir skór; við þá hafði það
reyndar ekkert að gera, því að það var
enn ekki farið að ganga, en það hafði ekki
augun af hinni leiftrandi stjörnu á greni-
trénu. Gréta tók brúðuna sína, setti hana
á gólfið og hafði gaman af, að hún gat
dansað. Hans skoðaði sleðann sinn að aft-
an og framan, ofan og neðan, utan og
innan, og þegar því var lokið, sagði liann:
„Þetta er alls ekki minn sleði.“
„Hvers vegna ekki?“ spurði faðir hans.
„Þessi sleði er rauður að innan og blár
að utan, ég hafði viljað eignast sleða, sem
væri blár að innan og rauður að utan. Þú
hefur sjálfsagt beðið um skakkan sleða,
pabbi.‘ ‘
„Iivernig getur þú ætlað honum pabba
þínum slíkt?“ sagði mamma Hans. „Hann
hefur beðið um réttan sleða, en það hafa
orðið einhver misgrip hjá jólabarninu.“
Það hélt Hans að væri óhugsandi um
jólabarnið. Hann skyldi fara til þess, ef
hann rataði, og spyrja það, hvernig á
þessu stæði. Á þessu var hann að stagast
allt kvöldið. En svo urðu börnin syfjuð,
og móðir þeirra kom þeim í rúmið.
„Mamma,“ sagði drengurinn í svefnrof-
unum, „hvar kom jólabarnið hingað inn?“
„Um framdyrnar reið það inn á gólfið.“
„Og hvar fór það út?“
„Um liliðardyrnar.“
„En þær eru of lágar fyrir ríðandi
mann.“
„Það fór af baki drengur.“
„Og fór það svo á bak aftur fyrir utan
dyrnar? Og hvað er orðið af því?“
Jesúbarnið þeysir fyrst um þöglan greniskóg,
um þéttan, undurfagran vetrarskóg,
napur bítur kuldinn, og kristall prýðir snjó,
kristall skein mót tunglinu og hló.
BarniS spurSi krumma tvo, sem krunkuSu viS ský:
„Er himnahliSiS gullna opiS, vinir góSir?“
Þeir sögSu: „ÞaS er lokað, en lýkst upp brátt
á ný“.
„Þá held ég“, segir barniS, „áfram ferS um
f jallaslóðir' ‘ •
Um Álfavatns glitrandi ísahjarn
ríður á jólanótt Jesúbarn,
það bindur fák sinn i friSsæla lág
og gengur á öræfi grett og há.
Ef þú tindsins efsta klífur hjarnið
án þess nokkru sinni að hverfa frá,
mundu finna blessað Jesúbarnið,
sem bíður þín í næstu dalalág.
Svo mælti móðirin og slökkti með liægð
24
VO RIÐ