Vorið - 01.12.1972, Síða 32

Vorið - 01.12.1972, Síða 32
niður í þessar iiugaanir, að liann lieyrði ekki orð greifans. „Prófessor, viljið þér skrifa bréfið til Tom? Handleggurinn er ekki orðinn jafngóður.“ „Já, með ánægju, með ánægju,“ sagði Paganel. „Eg er tilbúinn.“ Hann tók upp vasabók sína, reif blað úr henni og gerði sig líklegan til að skrifa: „Pyrirskipun til Tom Austin um að létta akk- erum og sigla „Duncan“ til . . . “ Paganel var að enda við að skrifa orðið ,,til,“ þegar honimi varð litið á fréttablað majórsins, „Australie and New-Zealand“, sem lá við fætur hans. Það var þannig brotið saman, að síðustu stafirnir í New Zealand sáust aðeins. Paganel virtist nú gleyma öllu, bæði Glenvan og bréfinu, sem hann var að skrifa. „Jæja, herra prófessor,“ sagði greifinn. „Ég er heimskingi!“ mælti prófessorinn. „Hvað eruð þér að segja?“ spurði majórinn. „Ekki neitt, ekki neitt,“ svaraði prófessorinn, en tautaði stöðugt fyrir munni sér: „aland, aland' ‘. Prófessorinn hafði sprottið upj) úr sæti sínu og stóð nú með blaðið í hendinni. Hann sneri því milli handanna sitt á hvað, og það var auðséð, að hann bjó yfir einhverju, sem hann langaði til að segja. Allir horfðu undrandi á þessar aðfarir hans, en svo var eins og hann áttaði sig, liann settist aftur niður og spurði: „Ilvað á óg að skrifa?“ Glenvan las fyrir Iionum eftirfarandi bréf: „Eyrirskipun til Tom Austin um að létta sam- stundis akkerum og sigla „Duncan' ‘ til austur- strandar Ástralíu á 37. breiddargráðu." „Ástralíu?" endurtók Paganel. Þegar hann hafði lokið við að skrifa bréfið. rétti hann greifanum það, og er liann hafði ritað nafn sitt undir, lokaði liann bréfinu, og Paganel skrifaði utan á það með skjálfandi hendi: „Til Tom Austin, skipstjóra á skemmtisnekkjunni „Duncan“, Melbourne.' ‘ Að þvi búnu gekk hann út úr vagninum, en tautaði í sífellu: „aland, alaud!“ Næsti kafli heitir: OF SEINT ÞEIR áskrifendur og útsölumenn, sem ekki hafa ennþá gert skil, eru beðnir að athuga, að gjalddaginn var 1. maí. Gerið skil fyrir áramót! Með beztu kveðjum Útgefandi. 32 VORIÐ

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.