Bjarmi - 01.12.1993, Blaðsíða 13
Stjórnandi „Gospel Brodcasting Service“ er Eþíópíu-
maðurinn Hailu Wolde Semaiat.
Myndir: Martin Birkedal NOREA Radio.
lögð á þrjú stærstu tungumálin, amharísku,
tigrinja og órómó.
Hin andlega barátta er hörð í Eþíópíu í dag.
Straumur islamskra trúarhópa er inn í landið og
margar freistingar boðnar ef fólk bara vill trúa
og kalla sig múhameðstrúar. Þá er t.d. hægt að
fá menntun og húsnæði - jafnvel peninga bjóða
þeir til að lokka fólkið til sín. Einnig hafa mis-
munandi sértrúarhópar komið til landsins og
hafa leitt marga í villu.
Hins vegar hafa ntiklar kristnar vakningar
orðið í landinu á undanförnum 30 árum og
vitna menn iðulega um að útvarpsþættirnir hafi
orðið til að varðveita þá í trúnni. Þörfin fyrir út-
sendingamar hefur því heldur aukist en minnk-
að á undanförnum árum og gefur það starfs-
fólki GBS styrk til að halda ótrautt áfram að
boða fagnaðarerindið um Jesú Krist.
Biðjum fyrir starfi GBS í Eþíópíu í dag!
Staðreyndir unt Gospel Broadcasting
Service
* Sendir út frá Nairóbí í Kenýu.
Starfsmenn. Stjórnandi Hailu Wolde
Semaiat.
* Sendir: FEBA (Far East Broadcasting
Assosiation) á Seychelleyjum í Indlands-
hafi.
* Sendir til Eþíópíu á amharísku, tigrinja og
órómó.
* Hugleiðingar í hálftíma á dag á hverju þess-
ara þriggja tungumála. Auk þess fjölskyldu-
og barnaþættir.
* Nýtur fjárhagslegs stuðnings frá Þýskalandi,
Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og Noregi.
* Markmiðið er að boða fagnaðarerindið og
tengja hlustendur svæðisbundnum kirkjum.
Friðrik Hilmarsson tók saman.
Útvarp NOREA
Úr bréfum frá hlustendum:
Germai Tesfom að
störfum í
hlustunarherbergi
GBS-stöðvarinnar.
Hann vinnur ásamt
Egyptaland
Ég er 28 ára og lærður handverksmaður.
Starf mitt hefur verið að slípa timbur. Nú skrifa
ég til þín „bak við lás og slá“ því ég sit í fang-
elsi fyrir morð. Dómurinn var 15 ár og hef ég
þegar lokið sex árunt við erfiðisvinnu. Ég
heyrði þáttinn þinn í útvarpinu. Nú vil ég kynn-
ast vilja Guðs með líf mitt og gjarnan læra að
biðja.
Indland
Við erum nokkrar húsmæður sem komum
saman á bænastundir. Þær þekkja flestar lítið til
orðs Guðs. Ég hlusta á útvarpsþáttinn og skrifa
eins mikið niður og ég get. Minnispunktana
nota ég til að kenna hinum í leshópnum okkar.
Þær segja þetta vera til mikillar blessunar því
engin þeirra getur lesið eða skrifað. Á þennan
hátt verða útvarpsþættir þínir okkur öllum að
gagni og til blessunar.
Armenía
Fjölskylda mín hefur bæði gagn og ánægju
af að setjast við útvarpstækið og hlusta á orð
Guðs á hverjum degi. Fagnaðarerindið um Jesú
Krist hefur breytt lífi okkar mikið og það hefur
snert mig djúpt. í húsi okkar höfum við ákveð-
inn stað þar sem Biblían liggur og hafa allir í
fjölskyldunni aðgang að henni þar og geta lesið
í henni. Þakka ykkur fyrir að senda okkur Bibl-
íu.
Hin andlega
barátta er
hörð í Eþíópíu
í dag. Straum-
ur islamskra
trúarhópa er
inn í landið og
margar freist-
ingar boðnar
ef fólk bara
vill trúa og
kalla sig mú-
hameðstrúar.
öðrum að gerð
amharísku þáttanna.