Bjarmi - 01.10.1995, Side 14
AFMÆLI
Hvers vegna gekkst þú í
Gídeonfélagiö?
Gunnar Þór Pétursson,
26 ára laganemi, gekk í Gídeonfélagið
á afmælisárinu 1995
„Eg hafði sjálfur haft góð kynni af félaginu, allt frá því ég
íekk mitt Nýja testamenti 10 ára gamall, og langaði til að
leggja mitt af mörkum til að fleiri fengju að kynnast orði
Guðs á þann hátt sem ég hef fengið að reyna það.“
kringum inntökuskilyrðin. Hver umsókn um inn-
göngu er vegin og metin af landsstjórninni, en
hingað til hefur afar fáum umsækjendum verið
synjað um inngöngu. Við höfum spilað þetta
nokkuð eftir eyranu og reynt að taka tillil til þeirra
aðstæðna sem við búum við. Island er fiskimanna-
þjóðfélag, en Bandaríkin aftur á móti bænda-
samfélag. í Bandaríkjunum fá bændur inngöngu í
Gídeonfélagið og því þá ekki t.d. íslenskir skip-
stjórnarmenn? Við höfum tekið menn inn í félagið
sem uppfylla ekki hugmyndir um ströngustu
inntökuskilyrði, en að mínu viti hafa margir þeirra
reynst vera meðal okkar bestu manna. í langflestum
tilfellum er þó reynt að hafa í heiðri þær reglur um
inntökuskilyrði sem settar eru af Alþjóðasamtökum
Gídeonfélaga, enda uppfylla um 80% félagsmanna
hér á landi inntökuskilyrðin.
Ymsir vilja núa okkur því um nasir að Gídeon-
félagið sé snobbklúbbur, en það er langt í frá.
Vissulega eru til Gídeonfélagar sem eru sterkefnaðir,
en að megninu til erum við ósköp venjulegir menn
og margir jafnvel láglaunaðir. Á Gídeonmóti í
Bandaríkjunum kynntist ég þarlendum kennara sem
tjáði mér að hann myndi byrja að spara fyrir næsta
móti um leið og hann kæmi heim, en slík mót eru
haldin einu sinni á ári. Eins og fram hefur komið
starfa Gídeonfélög í 172 þjóðlöndum, en af þeim eru
um 80-90 með afar lágar þjóðartekjur pr. einstakl-
ing. I þessum löndum tekur það marga Gídeon-
félaga heilan mánuð að vinna fyrir ársgjaldinu."
Stöndum vörö um
kjarnaatriöin
„Varðandi trúarlega þáttinn er ákveðin klásúla í
inntökubeiðni okkar þar sem spurt er hvort um-
sækjandi trúi á tilvist „hins óendanlega eldsdíkis
fyrir hina ófrelsuðu" og er þar vísað til Opinberunar-
bókar Jóhannesar 20:10 og 14-15. Margir hafa hnotið
um þessi orð og ekki treyst sér til að skrifa undir
þau. Eg get nefnt þér sem dæmi að fyrir örfáuin
árum kom upp ágreiningur meðal Gídeonmanna í
Þýskalandi um þetta tiltekna atriði í inntöku-
beiðninni. Þeim sem ekki gátu fellt sig við stefnu
félagsins var gert að fara, en það kostaði að 25%
félagsmanna í Þýskalandi sögðu sig úr félaginu.
Reyndar eru margir þeirra komnir aftur.
Gídeonfélagar trúa að Biblían sé innblásið, óskeik-
ult orð Guðs. Allt sem þar er ritað er sannleikur.
Vissulega er alltaf hætta á því að einhverjir komist
inn í félagið sem meina ekkert með því að játast
undir þau trúarlegu inntökuskilyrði sem sett eru.
Við því er ekkert að gera, en ég get fullyrt að þeir
kemur til okkar eftir kirkjuheimsóknir og greinir
okkur frá því að það hafi komist til lifandi trúar af
lestri orðsins. Þessir vitnisburðir eru afar uppörv-
andi, ekki síst ef maður hugsar til þess að án efa
fáum við ekki að heyra um nema brot af þeim
ávöxtum sem starfið skilar."
- Hverjirfá að ganga ífélagið hér á landi?
Kári: „Ef farið er nákvæmlega eftir ritúalinu, þá
eru mönnum settar nokkuð þröngar skorður um
aðgang. Gídeonhreyfingin er fyrst og fremst félags-
skapur kristinna verslunar- og sérmenntunarmanna,
með sérmenntun er átt við t.d. lækna og lögfræðinga
svo eitthvað sé nefnt. Auk þessa þurfa félagar hafa
náð 21 árs aldri. Hérlendis hefur oft verið farið
En hvers vegna ættum við að eyða peningum í
einhverjar glansútgáfur fyrir Islendinga á
sama tíma og mörg önnur Gídeonlönd geta
ekki staöið undir eigin dreifingu?
14