Bjarmi - 01.05.1998, Síða 20
hann var maður til að standa upp og
segja: „Ég hafði rangt fyrir mér. Ég er
búinn að sjá hverjir þeir eru“ - og svo
barðist hann gegn þeim. Hann hafði
verið í uppáhaldi hjá nasistunum og
hefði getað gert allt sem hann vildi en
hann sneri við blaðinu. Enda segir
hann sjálfur: „Ekkert er eins hættulegt
og dauður sannleikur. Maður verður að
segja sannleikann þegar hann vitjar
manns. Það er ekki hægt að leggja
sannleikann i salt þvi þá verður hann
hættulegur. Maður verður að segja hann
strax.“ Og það gerði Kaj Munk. Hið sama
má segja um Jardin. Fyrir honum var
það nauðsyn að segja sannleikann. Og
þegar við skoðum Biblíuna eru skilaboðin
þessi: Veriði þið sjálf. Þið verðið að þora
að standa á þvi sem þið eruð. Sannleik-
urinn mun gjöra yður frjálsa.
Það kemur fram í leikskránni að kross-
inn skipi háan sess í leiksýningunnt
Já, það er rétt og ef ég má segja sög-
una af þessum krossi þá verð ég að fara
tíu ár aftur í tímann þegar Kaj Munk
var settur upp, en þar var atriði þar
sem Kaj Munk segist ekki skilja af
hverju Jesús heimsótti aldrei vin sinn
Jóhannes í fangelsinu. „Kannski var
það,“ sagði Kaj Munk, „af því að Jesús
vissi að það er fólgið í eðli sannleikans
að hann um stund geri og eigi að gera
mann mjög einmana." Um leið og hann
sagði þetta litu allir á Kristsmyndina
sem er í kapellunni í Hallgrímskirkju,-
það er stórt málverk af Kristi á krossin-
um. Þetta var óskaplega áhrifaríkt því
að fólkið horfði á þessa einmana mann-
veru á krossinum og fór að velta fyrir
sér þessu með eðli sannleikans, eðli
kristindómsins.
Um vorið, eftir sýningarnar á Kaj
Munk hér heima, var ákveðið að leika
Kaj Munk í Kaupmannahöfn. Ég var
búin að skoða aðstæður í Vartov-kirkju
í Kaupmannahöfn þar sem við áttum að
leika. Þetta er gömul kirkja rétt hjá Ráð-
hústorginu, alveg yndisleg kirkja, en
þar var engin altaristafla. Þar var predik-
unarstóllinn yfir altarinu, eins og úti í
Viðey. Svo ég hugsaði með mér: Ég sleppi
bara þessari setningu um sannleikann og
sleppi því að láta leikarana líta upp á
Kristsmyndina. Svo hef ég eina æíingu og
daginn eftir átti allt dótið okkar að fara
með skipi til Kaupmannahafnar.
En æfingin án Kristsmyndarinnar var
einskis virði. Ég man að ég var alveg
eyðilögð og fór niður í fjöru með hund-
inn minn um morguninn. Það átti að
sækja gáminn klukkan sex um eftirmið-
daginn. Og ég fór að biðja og biðja og
svo hugsaði ég: Heyrðu, þig vantar
Kristsmynd. Þú hlýtur að fá Krists-
mynd! Og ég labbaði mér upp í Landa-
kotskirkju þar sem tók á móti mér
franskur prestur. Ég sagði honum þetta
furðulega erindi mitt, að ég þyrfti að fá
mynd af Kristi á krossinum. „Já,“ sagði
hann, „við verðum að hringja í hann
séra Georg.“ Og séra Georg segir við
mig: „Já, Guðrún mín, þú komst að
skemmta börnum á afmæli kaþólsku
kirkjunnar í fyrra. Nú er komið að okk-
ur að gera eitthvað fyrir þig.“ Svo var
mér fylgt um prestsbústaðinn og franski
presturinn sýndi mér ýmsa krúsifixa.
Að lokum fór hann með mig inn í
kapellu prestanna og þar bar fyrir augu
mér sá fegursti krúsifix sem ég hef aug-
um litið. Presturinn signdi sig og kraup
frammi fyrir myndinni, gekk svo að
henni og sagði: „Getur þú notað þessa?"
- Síðan hjálpaði hann mér að bera
myndina út í bílinn sinn og við keyrðum
að gámnum. Ég var með lykla að gámn-
um og þegar við erum að koma mynd-
inni fyrir segir presturinn: „Það hefur
oft verið beðið frammi fyrir þessari
mynd. Þetta er elsta altaristafla kaþ-
ólsku kirkjunnar á íslandi.“ Þá hljóp ég
heim, sótti sængina mína og setti yfir
krúsifixinn og lokaði svo gámnum. Dag-
inn eftir hringdi ég í framkvæmdastjór-
ann, heldur betur roggin: „Jæja, ég er
búin að útvega krúsifix.“ - „Hvað seg-
irðu?“ - Svo segi ég henni frá Krists-
myndinni. „Þú hefur auðvitað látið
tryggja hann?“ - „Nei...“ - „Þú hefur
auðvitað látið smíða utan um hann
kassa?“ - „Nei, ég setti bara sængina
mína yfir hann.“ Svo er bara hringt með
látum niður á höfn - og þeir segja: „Nei,
því miður, gámurinn er kominn niður í
skipið."
Ég ætla ekki að reyna að lýsa því
hvemig mér leið. Ég sá fyrir mér úfinn
Ekkert er eins hættulegt og dauður sannleikur.
Maður verður að segja sannleikann pegar hann
vitjar manns. Það er ekki hægt að leggja
sannleikann í salt pví pá verður hann hættulegur.
Maður verður að segja hann strax.