Bjarmi - 01.05.1998, Qupperneq 22
Kjartan Jónsson
Verður fslenska kirkjan áhorfandi
eða þátttakandi í kristniboði
alheimskirkjunnar á næstu öld?
r. Torbj0rn Lied, aðalfram-
kvæmdastjóri Santalmis-
jonen í Noregi, átti skamma
______ dvöl hér á landi á dögun-
um. Santalmisjonen er
þriðja stærsta kristniboðshreyfing Nor-
egs og hefur um 80 kristniboða í þrem-
ur heimsálfum auk þess sem umfangs-
mikið starf er rekið í Noregi.
Santalmisjonen hefur í samstarfi við
norsku þjóðkirkjuna þreifað sig áfram
með leiðir til að gera kristniboð að eðli-
legum hluta safnaðarlífs norskra safn-
aða. Eitt af því sem hefur geflst vel eru
gagnkvæm bænasambönd á milli safn-
aða í Noregi og í kristniboðslöndunum.
Söfnuður í Noregi og söfnuður í kristni-
boðslandi skuldbinda sig til að biðja
reglulega hvor fyrir öðrum en skiptast
einnig á fréttum og upplýsingum. Um
50 slíkum samböndum hefur verið
komið á með mjög góðum árangri. Víða
Árið 1910 hafði helm-
ingur jarðarbúa ekki haft
nein kynni afkristin-
dómnum en nú er talið
að aðeins 18% jarðarbúa
hafi ekki kynnst honum.
Sr. Torbjorn Lied.
hefur aukið bænastarf leitt til trúarlegs
vaxtar og blessunar.
Þrjár ráðstefnur
Torbjorn er mjög vel að sér um málefni
kristni og kristniboðs á alþjóðavettvangi
og fjallaði um nýjustu strauma varðandi
stöðu og útbreiðslu trúarinnar á meðal
mótmælenda um þessar mundir í erindi
sem hann flutti í heimsókn sinni hér á
landi.
Edinborg 1910
Hann hóf mál sitt á að vitna til hinnar
miklu kristniboðsráðstefnu sem haldin
var í Edinborg árið 1910. Hún markaði
tímamót í kirkjusögunni. Þá komu um
2.000 leiðtogar frá ílestum heimshorn-
um og íjölluðu um hvernig ná mætti
heimsbyggðinni með fagnaðarerindi
Jesú Krists. Meiri hluti þátttakenda
kom frá Vestur-Evrópu og Norður-Am-
eríku. í lok ráðstefnunnar var eftirfar-
andi yfirlýsing gefin: „Flytjum heims-
byggðinni fagnaðarerindið i okkar kyn-
slóð. Tökum til hendinni, hvaða fórnir
sem það kann að kosta okkur, þannig
að bæði líf okkar og dauði sé helgað því
að ná heimsbyggðinni með fagnaðarer-
indið - í okkar kynslóð.“
Mönnum varð ekki að ósk sinni. Þeg-
ar ráðstefnan var haldin voru um 33%
mannkyns í kristnum kirkjum. Nú í lok
aldarinnar eru kristnir menn enn að-
eins 33% af mannkyninu. Munurinn er
sá að nú eru kristnir menn miklu íleiri,
eða um tveir milljarðar, enda er mann-
kynið miklu fjölmennara. Árið 1910
hafði helmingur jarðarbúa ekki haft
nein kynni af kristindómnum en nú er
talið að aðeins 18% jarðarbúa hafi ekki
kynnst honum.
Torbjom bar saman tvær alþjóðaráð-
stefnur um kristniboð, í Salvador í
Brasilíu árið 1996 og Pretoriu 1997.
Salvador 1996
Ráðstefnan í Salvador var haldin á veg-
um Alkirkjuráðsins og bar yfirskriftina:
„Fagnaðarerindið og menningin." Þátt-
takendur vom 600 frá um 100 löndum.
Þar vom margir góðir íyrirlestrar haldn-
ir og áhersla lögð á mikilvægi þess að
sérhver kristinn söfnuður taki hlutverk