Bjarmi - 01.12.1998, Síða 5
Benedikt Gunnarsson, listmálari við mósaikmynd sína í Háteigskirkju.
af helgidómum, kirkjum, moskum og
musterum þar sem byggingin og lista-
verkin mynda eina heild þannig að ekki
verður sundur skilið.
Telurðu að myndlistin geti skapað irú
eða skapar trúin list?
Að mínu mati er það fyrst og fremst
trúin sem glæðir og vekur einstakling-
inn til vitundar um dýpri sannleika og
hvetur hann þannig til að skapa lista-
verk, hvort sem það er mynd, ljóð, lag
eða saga. Trúin hefur miklu dýpri rætur
og er þessi mikli hvati og hefur því oft
verið nokkurs konar lífgjafi á sviði list-
sköpunar, alveg eins og trúin er hvati til
átaka fyrir manninn í samfélagslegu til-
liti, í þjónustu við náungann og kær-
leika til hans. A hinn bóginn getur listin
svo glætt áhuga manna á trúnni og
dýpkað lífsskilning þeirra.
JVú hefur þú auðvitað málað ýmiss konar
myndir en þar á meðal eru trúarleg verk.
Hejurðu alla tíð gert trúarleg myndverk?
Nei, það er langt frá því. Aftur á móti
rann það fljótt upp fyrir mér að sá sem
ynni við sköpun væri að þjóna ein-
hverju æðra afli og í hverju listaverki
sem væri kannski vel eða allvel heppn-
að - sjaldan heppnast listaverk eins vel
og maður hefði kosið - þá væri trúin
eins og dulbúinn eða innbyggður þáttur
í verkinu.
Listamaðurinn er oftast að spegla eða
túlka sköpunarverkið, náttúruna, hrynj-
andi hennar - lífræna og ólífræna. Birta,
ljós og skuggar í óendanlegri fjölbreytni
litbrigða árstíðanna, hiutföll landslags-
ins, ásamt form- og litaandstæðum í
föstum og fljótandi efnum, eru helstu
kveikjuþættir minnar myndgerðar og
hafa flestir ratað í stílfærðu formi inn í
trúarleg verk mín. ísland er enn í sköp-
un og veraldardjúpið þenst víst stöðugt
út og dýpkar!
Að mínu mati er pað fyrst og fremst trúin sem
glæðir og vekur einstaklinginn til vitundar um
dýyri sannleika og hvetur hann pannig til að skapa
listaverk hvort sem pað er mynd, Ijóð, lag eða saga.