Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1998, Blaðsíða 13

Bjarmi - 01.12.1998, Blaðsíða 13
val en að vera fremst og mest áberandi. Hins vegar hafði ég þjónað í lofgjörðinni í Orði lífsins í eitt ár, þá söng ég og spil- aði á píanó og var stundum ein. Eg sjó- aðist mjög mikið þar í píanóleik og söng. Tónlistin, sem er flutt á kristilegum samkomum, er tvenns konar: Lofgjörð þar sem fólk gleðst í Drottni, og svo eru tilbeiðslulögin sem eru oft rólegri. Á plötunni minni eru fleiri tilbeiðslulög, þar eru einnig lög sem eru hreinn og klár vitnisburður. Tónlist getur hjálpað fólki mjög mikið og lofgjörðartónlist nær til fólks og opnar fyrir sem mælt orð get- ur ekki. Múrar hrynja við lofgjörð. Drottinn býr í lofgjörð barna sinna, stendur víða í Sálmunum. Eitthvað ger- ist í lofgjörð og tilbeiðslu sem maður skilur ekki nema að upplifa það sjálfur. Venjulega eru tíu til ellefu lög á plötum með nýju efni en á þessari eru fimmtán frumsamin lög auk Amazing Grace sem Gísli flautar með Þóri Baldurssyni sem þar leikur með á kirkjuorgel. Það kom mér verulega á óvart þegar allt fór að flæða í tónlist hjá mér. Ég vissi allan tímann að þetta voru gjafir vegna þess að lögin voru betri en þau lög sem ég hef samið áður. Ég gef Guði dýrðina vegna þess að hann gaf mér allt þetta mjög örlátlega. Mér finnst ég ekki eiga þetta heldur vera ráðsmaður yfir þessu. Mér fannst þetta vera yndisleg vinna, allt annar andi var yfir stúdíóinu við vinnslu á þessari plötu en þegar ég vann plötur áður vegna þess að við vor- um að vinna með Guðs orð. Það var frábært hvernig Drottinn leiddi mig í þessu máli. Löngu áður en ég var farin að hugsa til þess að gera plötu kom trúbróðir til mín og sagði: „Herdís, hvenær ætlar þú í stúdíó? Ég vil fá að gera umslagið." Og það varð þannig og hönnun hans er frábær. Aðrir fóru að koma og hvetja mig og þegar vinnslan var farin í gang gekk allt ótrú- lega vel. Allt gekk upp. Við fengum að vera meira en mánuð í kirkju Oháða safnaðarins að taka upp. Það er stæsta stúdíó sem ég hef unnið í! Og þegar platan kom út kom t.d. Eiríkur á Omega að máli við mig og sagði að þeir vildu gera allt sem þeir gætu fyrir mig. Mike og Sheila á Lindinni hafa líka verið frábær. Og enn fæ ég hvatningu úr öll- um áttum. Svipaðar sögur hef ég heyrt fleiri segja. Faðir okkar á himnum er nefni- lega líka mjög praktískur og fer fyrir þegar við förum út á akurinn. Þess vegna er alveg óhætt að hlýða þegar hann kallar, því hann hefur lofað að ekki bara fara fyrir okkur, heldur að sjá um okkur líka. Ég hef ekki fengið betri plötusamning annars staðar! Heldur þú að önnur plata komi bráðum út þar sem þú átt meira ejni? Mér finnst ekki ólíklegt að svo verði einhvern tímann en núna fer tíminn í að kynna og selja þessa plötu til þess að ná endum saman. Allur ágóði af plöt- unni upp að 3500 eintökum fer til Daufblindrafélags íslands og helmingur ágóða eftir það, en nú er söluátak í gangi með þeim. Þeir sem kaupa plöt- una slá tvær flugur í einu höggi: Fá að heyra uppbyggilega tóniist með textum beint upp úr Biblíunni og styðja gott máiefni. Daufbiindir eru mjög einangr- aðir. í bígerð er að kaupa tölvur með blindraletursskjá, en með slíkum tækj- um opnast nýr heimur fyrir daufblind- um, því að þá geta þeir haft samband við aðra í gegnum síma og á netinu og t.d. lesið Morgunblaðið og íslenskar og erlendar bækur. Platan fæst í flestum hljómplötuversl- unum og í kristilegu búðunum, en einnig er hægt að panta hana í gegnum síma. Númerið er 520 4022 og er opið alla virka daga til kl. 22. Laugardaga má hringja í síma 862 1545. Ég mun aldrei aftur vera það sem ég var, ég mun aldrei aftur bera það sem ég bar. Þú léttir því af mér og gafst mér alveg nýtt líf, Faðir. Ég lofsyng mínum Drottni, lofa þig á hverjum morgni. Tigna þig allan daginn, lausnari minn. Tónlistin, sem erflutt á kristilegum samkomum, er tvenns konar: Lofgjörð par semfólk gleðst í Drottni, og svo eru tilbeiðslulögin sem eru oft rólegri.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.