Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1998, Blaðsíða 32

Bjarmi - 01.12.1998, Blaðsíða 32
Gunnar J. Gunnarsson Við megum ekki fljdta inn í nýja öld með dljds markmið Rætt við Sigurbjörn Þorkelsson nýráðinn framkvæmclcistjórci KFUM og KFUK í ReyUJavík Nýlega réðu KFUM og KFUK í Reykjavík nýjan fram- kvæmdastjóra í stað Ragnars Gunnarssonar sem nú er horfinn til kristniboðsstarfa í Kenýu. Bjarmi hafði samband við Sig- urbjöm Þorkelsson til að heyra hvernig nýtt starf og krefjandi legst í hann og hvað er helst framundan hjá KFUM og KFUK í Reykjavík. Hvernig líst þér á að starja semjram- kvæmdastjóri KFUM og KFUK í Reykjavik? Satt að segja þá leist mér nú ekkert á það þegar ég fékk boð um starfið þann 24. apríl sl. En að lokinni langri um- hugsun, viðræðum við vini og fjölskyldu og baráttu við sjálfan mig og Guð ákvað ég að slá til. Mér hefur verið ákaflega hlýlega tekið og er ég mjög þakklátur fyrir það. Nú er bara að sinna starfinu sem ég var kallað- ur til með Guðs hjálp. Ef hann vill nota mig í þetta starf í einhvem tíma þá er ég hér og mun reyna að leggja mig fram. Nú er í mörg horn að líta í starjijélag- anna. Á hvað vilt þú helst leggja áherslu í starfmu? Ég vil leggja áherslu á að tengja sam- an hina ýmsu þætti starfsins þannig að við bæði áttum okkur betur á umfang- inu og finnum okkur sem eina heild, limi á einum líkama, þótt starfsstöðvar séu margar og starfsemin margvísleg. Einfalda þarf reksturinn með markviss- um aðgerðum. Fjármál félaganna og fjáröflun þarf að vera sýnilegri þannig að við getum með einföldum hætti sýnt fram á hvað við söfnum miklu fé og í hvað það fer. Fjármálin þurfa að vera skýr og sannfærandi og jafnframt öll önnur málefni og framsetning félaganna. Ég á mér draum um þéttsetinn sal á samkomum okkar á sunnudögum. Ég á mér þann draum að félagsfólki jafnt sem öðrum finnist spennandi, eftirsóknarvert og gott að sækja samkomur okkar þar sem kröftugur söngur er sunginn við vandaðan hljóðfæraleik. Metnaðarfull og vönduð dagskrá verði í boði þar sem starfsgreinar okkar verði kynntar út frá margvíslegu sjónarhomi, menningarvið- burðir fari fram, auk vitnisburða og uppbyggjandi orða út frá Guðs orði í Biblíunni. Að dagskránni komi fyrst og fremst félagsfólk en þó einnig utanað komandi gestir á stundum. Að fólk þyrsti í að koma og vilji ekki fyrir nokkum mun missa af því sem fram fer. Öll með sama hug þótt ólík séum, kær- leikurinn, umhyggjan og samstaðan blómstri þannig að tekið verði eftir. Annars legg ég að sjálfsögðu mesta áherslu á að KFUM og KFUK séu æsku- lýðsfélög sem séu köllun sinni trú. Verk- efnin eru óþrjótandi og síst minni þörf á starfi KFUM og KFUK á meðal bama og unglinga nú. Tilboðin eru bara íleiri nú og því verðum við að vanda okkur enn betur en áður til þess að verða ekki und- ir í samkeppninni. Við þurfum því að standa fyrir markvissri leiðtogaþjálfun því að ef leiðtogana vantar verður ekkert starf, það segir sig sjálft. KFUM og KFUK eru félög. Þau eiga að vera félög biðjandi liðsmanna sem láta sig æskuna varða, komandi kynslóð. Öfl- ug, biðjandi félög karla og kvenna sem standa saman að stórkostlegri hugsjón. Annars getum við bara gleymt þessu. Haja stjórnir Jélaganna markað stejnuna í starjinu á komandi árum, nú þegar stutt er í aldamótin? Það er sameiginlegur vilji stjórnanna að skerpa línurnar. Átta sig á hvar við stöndum. Sameina og draga saman þar sem við á og leggja aukinn þunga þar sem við sjáum sóknarfæri. Til að geta markað stefnu þarf ákveðin hagræðing og ákveðnir hlutir að eiga sér stað. Árið 1999 þegar KFUM og KFUK verða 100 ára ræður miklu um framhaldið. Það reynir á samstöðu fólks. Hver er félags- kenndin? Hvaða mannafla höfum við? Eru menn tilbúnir að standa saman? Ef við treystum undirstöðurnar bæði félagslega, fjárhagslega og andlega og skerpum hugsjónirnar og þá þætti sem við viljum leggja mesta áherslu á á nýrri öld, þá er ég þess fullviss að KFUM og KFUK eiga mikið erindi í framtíðinni sem ómissandi félög í samfélaginu, félög sem kenna börnum, unglingum og full-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.