Bjarmi - 01.12.1998, Blaðsíða 34
Dr. Sigurbjörn Einarsson
svarar spurningunni:
Hvað á Jesús við með
orðum um glötun og
eilífan eld?
hins vegar að vara okkur á að koma
ekki þannig fram að við virðumst
hrokafull og þykjumst vita allt og eiga
svör við öllum gátum lífsins, það Ieiðir
aðeins til þess að við fælum menn frá
Kristi og því sem hann vill gefa öllum
mönnum.
Við glímum við lífið og spurningar þess
með Jesú Krist, frelsarann okkar, okkur
við hlið. Við hvílum í honum, treystum
honum og njótum leiðsagnar hans.
Áttu þér einhverja sérstaka drauma
varðandi starjfélaganna?
Já, að fólki beri gæfu og náð til þess
að vera umburðarlynt hvert við annað
og standi saman af kærleika. Mig
dreymir um öfluga, vel þjálfaða og fúsa
leiðtoga með hugsjónir, fólk sem raun-
verulega lætur sig börn og unglinga
varða og framtíð okkar dýrmætu þjóðar.
Félögin þarfnast lifandi liðsmanna
sem standa saman og sýna hverjir öðr-
um áhuga enda þótt starfsvettvangur-
inn sé ekki alveg sá sami og þótt ein-
staklingarnir séu ólíkir með misjafnar
þarfir og jafnvel ekki nákvæmlega sömu
áherslur í öllum málum.
Félögin þurfa á fólki að halda sem
tekur þátt í starfinu með beinum hætti
eða óbeinum og sækir trúfastlega fundi
okkar og samkomur.
Ég sé fyrir mér biðjandi hjörð sem er
starfsfús og tilbúin að fórna af tíma
sínum, fé og hæfileikum til þjónustu
við Krist og náungann eins og Guð
kallar okkur til. Hjörð sem kemur
saman til að biðja, lofsyngja Guði og
uppbyggjast í samfélaginu, þjónust-
unni og orði Guðs.
Ég á mér draum um lifandi leik-
mannahreyfingu sem getur ausið úr
lindum hjálpræðisins þjóðinni til bless-
unar. Ómetanleg félög sem tekið er
mark á vegna trúverðugleika þeirra
verka og aðferða sem þau nálgast börn
og unglinga með. Opin félög þar sem
fólki finnst gott að koma og vera,
þannig að það segi þakklátt og stolt frá
félögunum og fái fleiri til liðs við þau.
Skömmumst okkar ekki fyrir hin 100
ára gömlu æskulýðsfélög KFUM og
KFUK. Það er ekki ástæða til þess.
Jesús lifir og við fyrirverðum okkur
ekki fyrir hann, er það? Öll sem eitt í
honum.
Árni Helgason í Stykkishólmi sendi
bréf með spurningu til Sigurbjörns
Einarssonar, biskups. Ámi segir m.a.
í bréfinu:
„Ég hefi mikið velt fyrir mér ýmsu
sem Jesús segir, bæði Fjallræðunni
og öðru í guðspjöllunum. Mér finnst
að Jesús tali til okkar tæpitungu-
laust. Hann varar við öllu því sem til
óheilla horfir fyrir manninn og segir:
Gangið inn um þrönga hliðið o.s.frv.
Og hann talar um glötun og í Matt.
25,41 talar hann um helvíti og allt
sem bíður þar, svo sem hinn eilífi
eldur, og þangað fari meirihluti
mannkyns, ef ég skil þetta rétt. Hvað
meinar Jesús með þessum orðum?
Hvað felst í glötuninni sem Jesús tal-
ar svo oft um og varar við?“
Svar:
Ég þakka Árna Helgasyni, ötulum
vökumanni, fyrir bréf hans og spurn-
ingar. Sannarlega er ég sammála því,
að Jesús talar tæpitungulaust. Hann
kennir eins og sá, sem valdið hefur
(Mark. 1,22). Hann, sonur Guðs, tal-
ar í umboði og krafti þeirrar visku,
valds og gæsku, sem er sjálfur Guð.
Þess vegna get ég byggt allt mitt
traust og alla von á honum, varpað
allri áhyggju á hann, falið honum öll
afdrif mín og annarra, sáluhjálp
mína og hverrar mannveru. Þetta get
ég því heldur sem hann hefur stað-
fest kenningu sína, vitnisburð sinn
um sjálfan sig og öll sín orð með
blóði sínu á krossi og upprisu sinni
frá dauðum. Þannig stendur hann
fyrir augum mínum með sitt mikla
tilboð: Komið til mín allir. Ég er kom-
inn til að leita hins týnda og frelsa
það. Svo elskaði Guð heiminn, að
hann gaf einkason sinn, til þess að
hver, sem á hann trúir, glatist ekki,
heldur hafi eilíft líf. Það er ekki vilji
yðar himneska föður, að nokkur
þessara smælingja glatist (Matt.
11,28, Lúk. 19,10, Jóh. 3,16, Matt.
18,14). Hvar heldur hann þvl fram,
að „meirihluti mannkyns" fari til hel-
vítis? Ég finn það ekki. Með orðum
sínum um hið þrönga hlið og mjóa
veg, sem fáir velja, og víðu dyrnar og
breiða veginn, er hann ekki að segja
til um hinstu úrslit mannkynssög-
unnar, hann er að benda á stað-
reynd, sem blasir við í öllum áttum:
Þeir eru færri, sem sækja á brattann,
leggja sig fram sér til þroska og öðr-
um til hjálpar, fórna tíma og kröftum
I þágu annarra. Eða hvað finnst
áhugafólki um bindindismál og önn-
ur hugsjónamál?