Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1998, Blaðsíða 24

Bjarmi - 01.12.1998, Blaðsíða 24
Allt í einu opnaðist petta fyrir mér og ég bað fesú að taka við mér. A sömu stundu fór um mig gleði- straumur og allt breyttist. Þegar ég las í Biblíunni skildi ég allt í einu pað sem ég hafði áður lesið en ekki skilið. holdsins, nema það að Jesús hafi risið upp frá dauðum.“ Magnús sagðist gjarna vilja ræða þessi mál við mig undir fjögur augu og bauð mér að heimsækja sig síðar sem ég og þáði. I heimsókninni ræddum við Magnús um trúna og margt af þvi sem hann sagði mér opnaði augu mín fyrir því sem mér var áður hulið og ég fann að verulega var tekið að molna undan þeim skoðunum sem ég áður hafði á Satan og upprisu holdsins. Skömmu síðar fór ég á Biblíulestur hjá Magnúsi sem varð þess valdandi að mig langaði til að eignast þessa trú sem mennirnir í KFUM áttu og gaf þeim þann frið sem mig skorti. Vorið sem ég var í 3. bekk Kennara- skólans dó Inga systir mín. Hún var mér afar kær enda hafði ég verið hug- fanginn af henni frá því að hún fæddist, en hún var yngri en ég. Hún lést á Víf- ilsstaðaspítala og því féll það í minn hlut að gera fystu ráðstafanir varðandi jarðarför. í kistulagningunni flutti ég bæn áður en lokið var sett yfir kistuna. Ég var þá ekki enn kominn til lifandi trúar en Guð gaf mér styrk til þessarar bænar. Þáttaskil Haustið eftir að ég lauk prófi fékk ég starf við Miðbæjarskólann, einkum í forfallakennslu. Ég kenndi þar tvo vet- ur. Fyrri veturinn sótti ég samkomur KFUM vel. Á einni samkomunni talaði Ástráður Sigursteindórsson út frá texta í Gamla testamentinu sem mér fannst hafa lítinn boðskap að flytja. Ástráður lagði á það áherslu í ræðunni að fyrst yrðu menn að gefast Kristi, þá gæfi hann þeim skilning á Guðs orði, bæði Nýja og Gamla testamentinu. Allt í einu opnaðist þetta fyrir mér og ég bað Jesú að taka við mér. Á sömu stundu fór um mig gleðistraumur og allt breyttist. Þeg- ar ég las í Biblíunni skildi ég allt í einu það sem ég hafði áður lesið en ekki skil- ið. Ég hætti líka að blóta upp frá þeirri stundu. Það sem mér fannst einna erf- iðast var að segja foreldrum mínum að ég væri orðinn trúaður. Móðir mín varð afar glöð en faðir minn var greinilega ekki hrifinn en sagði fátt. Mér létti mjög þegar ég hafði sagt þeim hvað gerst hafði með mig. Eftir vetuma tvo í Miðbæjarskólanum ákvað ég að kenna úti á landi og fékk stöðu í Borgamesi. Fyrsta veturinn stofn- aði ég bamakór þar sem söng þríraddað en í honum voru um 30 börn. Einnig setti ég á fót vísi að KFUM-starfi þar. Annan veturinn í Borgarnesi fór ég á námskeið fyrir söngkennara sem haldið var í Reykjavík. Þar kynntist ég stúlku sem var 8 árum yngri en ég, Bryndísi Böðvarsdóttur. Ég heimsótti hana í páskaleyfi mínu seinna um veturinn og þá trúlofuðum við okkur. Mér var sæmi- lega vel tekið af fólkinu hennar þó þar hafi gætt nokkurrar tortryggni í minn garð því KFUM-stefnan var ekki hátt skrifuð á því heimili, enda var faðir hennar, sr. Böðvar Bjarnason, nýguð- fræðingur. Hann gaf okkur saman haustið eftir í kapellunni í KFUM-hús- inu. Brúðkaupsveisla var haldin heima hjá foreldrum Bryndísar. Þar mætti ekkert af mínu fólki en Þórður Möller var svaramaður minn. Bryndís ílutti með mér til Borgamess þar sem við bjuggum saman í einn ve'tur. Bryndís var yndisleg kona og náðum við vel saman. Hún var lifandi trúuð, brenn- andi fyrir framgangi fagnaðarerindisins og eftir því dugleg í starfinu í Guðs ríki. Eftir fyrsta sokkabandsárið í Borgar- nesi fluttum við til Akureyrar þar sem ég fékk kennarastarf. Þetta var haustið 1946. Ég kom Yd-KFUM starfi á fót þar nyrðra um veturinn. Þetta ár fæddist

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.