Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.1998, Side 10

Bjarmi - 01.12.1998, Side 10
Einn slæman veðurdag, í híf- andi roki og rigningu, fór út- sendari Bjarma í rauða húsið í Skerjafirði að hitta Herdísi Hallvarðsdóttur sem margir kannast við sem bassaleikara hljóm- sveitarinnar Grýlanna. Tilefni heimsókn- arinnar er nýútkomin geislaplata Her- dísar, Það sem augað ekki sér. Herdís býr í húsi sínu, Herdísarvík, ásamt eig- inmanni sínum Gísla Helgasyni tónlist- armanni, dóttur sinni Bryndísi 18 ára, sem er nú í lýðháskóla í Danmörku, Helga Tómasi 5 ára og hundinum Plútó. Þegar blaðamann bar að garði var Plútó í vinnunni með Gísla, en Herdís og Helgi Tómas voru heima og var Herdís að setja pez í pezkallana sonar síns. Ég settist inn í eldhús, þar sem útsýni gflr haflð er stórjenglegt, og spurði hana Jyrst hvert væri aðalstarj hennar. Ég hef verið lausamaður í tónlistar- og útgáfumálum í mörg ár. Við Gísli erum ásamt tveimur öðrum með lítið útgáfufyrirtæki, Fimmund. í nokkur ár höfum við hjónin gefið út þjóðlagatónlist með hljómsveitinni okkar, Islandicu, með henni hafa komið út þrjár geisla- plötur. Um tíma ferðuðumst við mikið með Islandicu, fórum til útlanda og vor- um líka fengin til að spila hér fyrir hópa. Enn þá kemur fyrir að við spilum fyrir hópa af útlendingum til að kynna YO íslenska tónlist. Aðalnúmerið okkar í þeirri hljómsveit er Gísli því að þegar hann byrjar að spila á ilautuna heillast menn alveg. Ég spila á bassa og syng einstaka lag. Núna er ég á kristilegu út- varpsstöðinni Lindinni mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga kl. 3 til 6:30 síð- degis. Ég hef unnið á öðrum útvarps- stöðvum, en þetta er allt öðruvísi og miklu, miklu skemmtilegra. Hvar sækir þú kristilegt samjélag? Ég frelsaðist þegar ég fór að horfa á kristilegu sjónvarpsstöðina Omega; þar er mikil og góð kennsla. Síðan fór ég að skoða kristileg samfélög og fann mig strax í Orði lífsins. Þar fékk ég mikla fyr- irbæn og þar átti ég skjól. Þar var ég líka í bænahópum og sótti biblíukennslu, en slíkt má ekki vanta, annars eru menn bara að bauka einu sinni í viku og þetta / Eg frelsaðist pegar ég fór að horfa á kristilegu sjón- varpsstöðina Omega; par er mikil og góð kennsla. Síðanfór ég að skoða kristileg samfélög ogfann mig strax í Orði lífsins. Ertu lærður bassaleikari? Ég var eitt ár í tónlistarskóla FÍH en ég lærði meira á því að spila svona út og suður. Ég hóf minn bassaferil í Grýl- unum, áður hafði ég spilað á gítar, lærði á það hljóðfæri í hálft ár, en er annars sjálfmenntuð. Ég ætlaði einu sinni að verða tónlistarkennari og var hálfnuð með það nám er ég hætti og fór að spila í Grýlunum. Svo ætlaði ég líka að verða tónskáld og fór áleiðis í því námi. Ár mín í tónlistarskólum eru alls 12. En mest hef ég lært á því að spila með ýmsum hljóðfæraleikurum í öll þessi ár. verður ekki neitt neitt. Þegar það hætti fyrir tæpu ári var ég í svona hálft ár úti um allt að skoða. Mér líkaði vel í mörg- um kirkjum, þær eru ólíkar og mér fannst margt spunnið í þær. Ég átti pínulítið erfitt með að velja á milli en endaði í Veginum því að þar er gott að vera. Annars held ég að allsstaðar sé gott að vera ef menn gefa sig í starfið og líta á kirkjuna sem heimili sitt en koma þar ekki bara sem gestir einstaka sinnum. Menn þurfa að láta Guð leiða sig og sýna sér hvar þeir eiga að vera. Ég átti bamatrú eins og flestir íslend- ingar, ég trúði á Jesú, en samt var hann

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.