Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.1998, Page 11

Bjarmi - 01.12.1998, Page 11
Herdís Hallvarðsdóttir enn að hrjá mig og ég átti við svefnleysi að stríða. Þegar ég frelsaðist var ég frekar þung- lynd, ég hafði verið inni á geðsjúkrahúsi þegar ég var yngri og tekið svefnlyf og þunglyndislyf árum saman. Ég var samt nokkuð góð inn á milli. Þegar ég frelsað- ist fór Drottinn að vinna mikið í mér, bæði í gegnum orðið sitt og bænina og vegna fyrirbæna annarra. Ég vissi að hann var að hjálpa mér að sigrast á þunglyndinu og hann gaf mér sýnir. Þegar ég fór út að ganga hafði ég fulla vasa af versum úr Biblíunni skrifuð á miða; annars sóttu að mér svo slæmar Ég var alltafað reyna aðfinna Guð og lesa Biblíuna mína og hlusta á yrédikanir en einhvern veginn var Biblían alltafeins og lokuð. svolítið óraunverulegur fyrir mér. Upp úr tvítugu fór ég að spjalla við sóknar- prestinn minn. Hann hafði skírt dóttur mína og mér fannst hann ágætismaður svo að ég fór til hans með ákveðin vandamál. Hann var mikið vænn við mig og hitti mig vikulega í nokkur skipti á skrifstofunni sinni. Eflir nokkrar vik- ur fór ég að spyrja hann um Drottin. Þá lifnaði yfir presti og hann sagði: Ég vil segja þér frá Drottni, og hann las fyrir mig úr Biblíunni, m.a. úr fjallræðunni, og einnig bað hann fyrir mér. Þá gerðist eitthvað. Ég veit það núna að heilagur andi kom og lauk upp Biblíunni fyrir mér. Ég stundaði kirkju í tvö ár eftir þetta, var í kirkjukór, en þetta fjaraði út aftur. Ég var alltaf að reyna að finna Guð og lesa Biblíuna mína og hlusta á prédikanir en einhvern veginn var Biblí- an alltaf eins og lokuð. Ég reyndi og reyndi í nokkur ár en ég sé það núna að til þess að skilja Biblíuna verður maður í fyrsta lagi að hafa góða biblíukennslu og í öðru lagi er mjög gott að fá skírn heilags anda til að ljúka upp Biblíunni, rétt eins og maður þarf dósahníf til að opna dós. í kirkjunni var ekki boðið upp á biblíukennslu eða bænahóp svo ég muni til. Ég las ekki í Biblíunni í tíu ár; á þeim tíma hraktist ég um í heiminum eins og svo margir gera. Maður er alltaf að leita að einhverju, fer úr einu verk- efninu í annað, reynir að skemmta sér eða gera eitthvað gagnlegt. Maður er í áþján allan tímann en veit það ekki og heldur að lífið eigi að vera svona rót- laust og í hjartanu er tómarúm og óhamingja sem maður veit ekki af hverju stafar því að maður hefur allt til alls. Samt vantar allan botn í allt. Eftir að ég eignaðist lifandi trú fékk ég að heyra að til sé eitthvað sem heitir skírn heilags anda. Þá sá ég líka fólk biðja fyrir sjúkum, fólk fékk fyrirbæn á sam- komum. Presturinn hafði beðið fyrir mér í einrúmi en aldrei í messunum. En þarna sá ég fólk kalla sjúka fram til fyr- irbæna, leggja hendur yfir þá í Jesú nafni og trúa því að þeir yrðu heilir, eins og stendur í Guðs orði. Ég var heilluð af þessu og fór að fara fram til fyrirbæna. Á þessum tíma leið mér ekki vel, ég var í hálfgerðri klessu eftir langa veru í heiminum (hver er ekki þung- lyndur af langri veru í heiminum?), restarnar af tuttugu ára þunglyndi voru

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.