Bjarmi - 01.12.1998, Síða 26
ningu
/
Astin getur birst í svo ótelj-
andi myndum,“ segir í dæg-
urlagi. Sama er að segja um
sorgina. Það er erfitt að
missa því þá fer eitthvað dýr-
mætt frá okkur. Það hefur áhrif á líðan
okkar. Sem hjúkrunarfræðingur í 17 ár
hef ég kynnst einstaklingum sem misst
hafa heilsuna tímabundið og fyrir lífstíð.
Einnig hef ég kynnst aðstandendum
sem hafa misst nána ættingja eða horft
upp á ættingja sem verða aldrei samir
aftur vegna veikinda. Þannig hef ég
kynnst sorginni og syrgjendum.
Sjálf hef ég kynnst sorginni. Ég missti
ástvin sem barn og fyrir 6 árum missti
ég þann ástvin sem ég elskaði umfram
alla aðra. Þessi missir var óumílýjanleg-
ur því við verðum ekki eilíf hér á jörð-
unni. Hann hafði mikil áhrif á líðan
mína. Það hjálpaði mér að lesa Jobsbók.
Síðastliðin þrjú ár hefur bakið á mér
kvartað undan illri meðferð, í vinnunni
og utan hennar. Reyndar byrjaði það að
kvarta fyrir löngu. Ég gat synt og æft
mig - og lagast. Sjúkdómsgreiningin
kom fyrir þremur árum:
Liðskrið
Læknirinn sagði að ég mætti ekki vinna
á gjörgæsludeild en ég hafði notið þess
að öllu leyti. Það var mjög hvetjandi og
örvandi á allan hátt og samstarfsfólkið
frábært. Ég mátti ekki lengur synda
daglega, aðeins einu sinni til tvisvar í
viku en ég hef tekið sund fram yfir alla
aðra hreyfingu. Mér var sagt að ég ætti
að ganga og hætta að gera æfingarnar
mínar sem ég hef gert tvisvar í viku í
mörg ár. Læknirinn sagðist getað skorið
mig en ráðlagði mér að bíða aðeins.
Þetta var það mikið áfall að ég neitaði
að horfast í augu við ástand mitt og
stakk höfðinu í sandinn eins og strútur.
Það var ekki fyrr en í byrjun þessa árs
að ég fór hægt og rólega að horfast í
augu við sjálfa mig. Vegna þessara veik-
inda get ég ekki stundað vinnu mína,
a.m.k. ekki um sinn. Að öllum líkindum
mun ég ekki vinna aftur á sömu deild.
Veikindin hafa ekki aðeins komið
tímabundið í veg fyrir að ég gerði flest
sem ég gerði áður heldur hafa þau gert
að engu vissar vonir og væntingar um
framtíðina. Ég verð að minnsta kosti að
taka ákvarðanir út frá breyttum for-
sendum. Það er svo skrítið með bakið.
Það sést ekki á mér hvað að er. Sólin
skein á mig í sumar eins og ykkur og ég
varð brún eins og þið. Ég geng ekki við
hækjur og hef ekki háan hita. Ég er að
vísu óróleg í biðröðum, er stöðugt á
hreyfingu eða hætti við en þá gæti ég al-
veg eins verið taugaveikluð, stressuð
eða í tímahraki. Ég hef hugsað mikið
um vini Jobs. Ég vil taka það skýrt fram
að ég á frábæra vini en ekki er hægt að
ætlast til þess að allir skilji mig. Það eru
mun færri með liðskrið en brjósklos og
verkirnir eru svo óræðir. Fólk, sem vill
hjálpa spyr: „Hefurðu prófað nálastung-
ur?“ „Þessi kínverski nuddari er æði.“
„Hefurðu farið á hestbak? Það er sagt
hjálpa." „Hefur þér ekkert batnað í hit-
anum í sumar?" Ekki má gera lítið úr
hinum góða hug sem býr að baki en
svona spumingar særa oft því að skelin
er þunn þegar verkirnir eru stöðugir.
Þeir gefa hvorki hádegisverðarhlé né
helgarfrí. Það skapar sorg að finna alltaf
til, að komast ekki þangað sem hinir
eru og missa af vinnufélögunum.
Styrkur
En ég á trúna, bænina og fullvissuna
um nálægð Guðs í öllu þessu. Hann hef-
ur sagt að hann leggi ekki meira á mig
en ég og hann ráðum við. Margir spyrja:
Af hverju ég? En má ekki eins spyrja: Af
hverju ekki ég? Ég ræð við þetta verkefni
með Guðs hjálp en ég er ekki viss um að
ég réði við eitthvert annað verkefni. Síð-
astliðið vor dó kær samstarfskona mín
og vinkona. Hún leysti stærsta verkefni
ævinnar frábærlega vel. Hún sýndi mér
það mikla traust að segja mér frá líðan
sinni andlegri og líkamlegri. Hún gaf
mér svo mikið og hvatti mig til að berjast
áfram. Ég veit að enginn getur tekist á
við verkefni annarra en það er hægt að
hjálpa til. Ég hef kannski grátið minna
út af eigin veikindum vegna þessarar
vinkonu minnar og vegna þess að ég á
möguleika í stöðunni. Samt sem áður
gef ég mér leyfi til þess að vera sorg-
mædd og syrgja því að það er nauðsyn-
legt í þessum erfiðleikum. Guð gaf okkur
þessar tilfinningar til þess að geta horfst
í augu við lífið aftur.
En ég á trúna, bænina og fullvissuna um nálægð
Guðs í öllu pessu. Hann hefur sagt að hann leggi
ekki meira á mig en ég og hann ráðum við.