Bjarmi - 01.12.1998, Síða 33
orðnum að biðja og lesa í Biblíunni, fé-
lög sem leiða og laða fólk til frelsarans
Jesú Krists.
Við megum ekki fljóta inn í nýja öld
með óljós markmið þannig að við vitum
ekki hvað við viljum eða hvert við stefn-
um. Við verðum að halda vöku okkar og
fara reglulega yfir alla þætti starfsins ef
við ætlum að lifa af sem trúverðug og
framsækin félög og rödd sem hlustað
verður eftir í þjóðfélaginu er varðar upp-
eldi barna og æskulýðs- og kristins-
dómsmál almennt.
KFUM og KFUK á íslandi uerða 100 ára
á komandi ári. Setur það ekki mikinn
svip á starjið í vetur? Hvemig er ætlunin
að minnast þessara tímamóta?
Veturinn í vetur ræður miklu um
framhald félaganna. Afmælið verður að
nýtast okkur til uppörvunar til frekari
starfa og nýrrar sóknar. Það má ekki
flækjast fyrir félagsstarfinu og gæti hæg-
lega orðið glæsileg og vegleg minningar-
athöfn ef við lítum eingöngu á það sem
uppfyllingu á langri sögu og nýtum það
ekki til að blása í lúðra til nýrrar sóknar
fyrir Krist og æsku landsins, sóknar sem
byggir á 100 ára mikilvægri og þakkar-
verðri sögu, sem treystir stoðir okkar í
þjóðfélaginu og getur kennt okkur margt.
Við munum minnast 100 ára afmæl-
isins á margvíslegan hátt og hefur verið
ánægjulegt að fylgjast með áhugasömu
félagsfólki leggja hönd á plóginn við
margvíslegan undirbúning.
Á afmælisdegi KFUM þann 2. janúar
verður árshátíð á Holtaveginum.
Sunnudaginn 3. janúar verður sérstök
hátíðarguðsþjónusta í Dómkirkjunni kl.
11:00 þar sem börn og leikmenn munu
þjóna. í guðsþjónustunni, sem verður
útvarpað, mun sr. Sigurður Pálsson
fyrrum formaður KFUM í Reykjavík
flytja hátíðarræðu.
Helgina 13. - 14. mars verður mikil
fjölskylduhátíð í Perlunni. Sögunni
verða gerð skil og starf félaganna í öllum
greinum kynnt í tali, tónum, með teikn-
ingum og myndum og allskyns uppá-
komum. Á sunnudeginum 14. mars kl.
17:00 verður síðan fjölskyldusamkoma
eða guðsþjónusta félaganna haldin í
. Perlunni. Fimmtudaginn 29. apríl, sem
er afmælisdagur KFUK, verður haldin
hátíðarsamkoma á Holtaveginum.
Sigurbjörn Þorkelsson framkvæmdastjóri KFUM og KFUK í Reykjavík.
Á haustdögum mun saga KFUM og
KFUK í 100 ár koma út. Þórarinn
Björnsson guðfræðingur hefur unnið að
ritun sögu félaganna og lagt í það gríð-
arlega mikla yfirsetu og vinnu. Verður
útgáfunni fylgt eftir með sérstakri út-
gáfusamkomu.
Umfangsmikil fyrirframsala á bókinni
hefur verið í gangi og gefst aðilum kost-
ur á að fá nöfn sín skráð á hamingju-
óskalista vegna afmælisins í bókina.
Auk þessa á sér stað útgáfa kynning-
arefnis á afmælisdagskránni og á starfi
félaganna. Nokkuð umfangsmikil fjáröfl-
un er í gangi og mun verða allt afmælis-
árið. Afmælismerki hefur verið hannað
af Tómasi Torfasyni en hann er jafn-
framt starfsmaður undirbúningsnefndar
að Perluhátíðinni í mars.
Hvert er hlutverk KFUM og KFUK í ís-
lenskri kirlcju og kristni?
Hlutverkið er fyrst og fremst að starfa
á meðal barna og unglinga, kynna þeim
frelsarann eina Jesú Krist. Boða þeim
kærleika Guðs sem birtist okkur í Jesú
Kristi og kenna þeim að biðja til hans
og lesa í hans orði. Þetta gerum við með
því að hjálpa þeim að móta allt sitt líf
eftir honum sem er lífið sjálft og gefur
okkur líf sem aldrei tekur enda, Jesú
Kristi.
Við þurfum að eflast sem félög og öfl-
ug liðsheild kirkju Krists á íslandi. Við
höfum hlutverki að gegna í kirkjunni
fyrir kristnina í landinu sem meðvitaðir
kristnir, kærleiksríkir einstaklingar
sem vilja þjóna Guði og náunganum og
laða fólk þannig til Krists. Við þurfum